Viðburðadagatal 2001
JANÚAR
13. janúar-18. febrúar
Myndlistarsýning Eggerts Magnússonar næfista.
Eggert Magnússon, sem er fæddur 1915, er sjálfmenntaður listamaður og telst til okkar þekktari næfista. Myndefni sitt sækir Eggert í eigin upplifun, atburði er gerast á líðandi stund og úr fortíðinni.
26. janúar-20. apríl
Myndlistarsýning Ólafs Jakobs Helgasonar í Félagsstarfi Gerðubergs.
FEBRÚAR
21. febrúar kl. 20.00
Tónleikar: Íslenska einsöngslagið
Einsöngstónleikar með nýjum lögum tónskálda á Myrkum músíkdögum. Samvinna við Tónskáldafélag Íslands og M-2000.
24. febrúar-25. mars
Íslenskir stólar
Sýning á íslenskri stólahönnun frá upphafi síðustu aldar til dagsins í dag.
Sýningin var samvinnuverkefni Gerðubergs og Hönnunarsafns Íslands í Garðabæ.
MARS
3. mars kl. 11.00
IBBY-ráðstefna. Þema: Pabbi, mamma, barn og bók.
Ráðstefna um barnabækur í gær, í dag og á morgun.
Í ár var litið yfir farinn veg, staðan í dag skoðuð og skyggnst inn í framtíðina í heimi barnabókmenntanna.
Fyrirlesararnir í ár: Dagný Kristjánsdóttir prófessor í íslenskum bókmenntum, rithöfundurinn Sjón, Valgerður Benediktsdóttir bókmenntafræðingur, Olga Guðrún Árnadóttir og Þorvaldur Þorsteinsson.
17. mars kl. 14.00
Sögusvuntan frumsýnir: LOÐINBARÐI
Frumsýning á nýjum brúðuleik eftir Hallveigu Thorlacius laugardaginn 17. mars kl. 14.00.
Loðinbarði er eldgömul íslensk þjóðsaga um tröllkarlinn Loðinbarða og samskipti hans við systurnar góðkunnu Ásu, Signýju og Helgu. Leikstjórn: Helga Arnalds. Lýsing: Sigurður Kaiser.
31. mars-29. apríl
Þetta vil ég sjá - DRASL 2000. Sjón valdi verk eftir:
Erró, Magnús Pálsson, Magnús Kjartansson, Hrein Friðfinnsson, Braga Ásgeirsson, Sigurð Örlygsson, Sólveigu Aðalsteinsdóttur, Friðrik Þór Friðriksson, Margréti Blöndal, Harald Jónsson, Ingu Svölu Þórsdóttur, Kristin G. Harðarson, Ásdísi Sif Gunnarsdóttur, Helgu Óskarsdóttur, Ómar Stefánsson, Þorra Hringsson.
APRÍL
27. apríl-september
Myndlistarsýning Gunnþórs Guðmundssonar
í Félagsstarfi Gerðubergs.
28. apríl kl. 13.30
Ritþing: Sigurður Pálsson rithöfundur
Stjórnandi: Jón Ingvi Jóhannsson bókmenntafræðingur.
Spyrlar: Kristján Þórður Hrafnsson bókmenntafræðingur og rithöfundur og Vigdís Grímsdóttir rithöfundur.
Einnig komu fram leikararnir Edda Heiðrún Backman og Benedikt Erlingsson og Jóhann G. Jóhannsson tónlistarmaður.
MAÍ
27. apríl - 4. maí
Menningardagar í Félagsstarfi Gerðubergs
5. maí-17. ágúst
Smelltu af - Ljósmyndasýning grunnskólanema
Málþing um börn og ljósmyndir
5. maí kl. 11.00-13.30
Meðal fyrirlesara: Gerður G. Óskarsdóttir fræðslustjóri, Marteinn Sigurgeirsson kennsluráðgjafi, Karl Jeppesen lektor, Ingibjörg Hannesdóttir myndmenntakennari Guðbrandur Benediktsson sagnfræðingur, Anna Flosadóttir kennari Guðrún Angantýsdóttir kennari og Þóra Melsted kennari og deildarstjóri.
13. maí kl. 14.00-18.00
Búmm! Krass! Bang! Dagur slagverksins í Gerðubergi
Samvinnuverkefni Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og FÍT.
Flytjendur:
BENDA: Eggert Pálsson, Pétur Grétarsson og Steef van Oosterhout.
Frank Aarnink, Matthías MD Hemstock, Snorri Sigfús Birgisson, Tena Palmer, og Herdís Jónsdóttir.
JÚNÍ - ÁGÚST
Gagn og gaman - listsmiðjur barna
SEPTEMBER
8. september-30. september
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
21. september-9. nóvember
Valgard Jörgensen
Myndlistarsýning í Félagsstarfinu.
OKTÓBER
6. október kl. 13.30
Sjónþing Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur
Stjórnandi: Halldóra Friðjónsdóttir leikhúsfræðingur.
Spyrlar: Kjartan Ragnarsson leikstjóri og Hildur Hákonardóttir vefari.
Sýningin var framlengd til 16. desember vegna mikillar aðsóknar.
25. október kl. 20.00
Kaldalónstónleikar í Gerðubergi
Árni Sighvatsson baríton og Jón Sigurðsson píanóleikari fluttu sönglög Sigvalda Kaldalóns.
NÓVEMBER
10. nóvember kl. 13.30
Ritþing Steinunnar Sigurðardóttur
Stjórnandi: Kristján B. Jónasson. Spyrlar: Sjón og Vigdís Finnbogadóttir.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir las úr óútkominni bók Steinunnar.
16. nóvember
Kristín Bryndís Björnsdóttir
Myndlistarsýning í Félagsstarfinu.
24. nóvember kl. 14.00
Viltu lesa fyrir mig?
Barnadagur. Sýning á myndskreytingum úr nýútkomnum íslenskum barnabókum.
Höfundar lesa upp úr nýútkomnum barnabókum.
Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg kynntu dagskrána.
Jólaleikur í flutningi brúðuleikhússins Tíu fingur, Snuðra og Tuðra og Stopp leikhópurinn.