Gerðuberg

 

Svanurinn minn syngur


Sýning um líf og ljóð skáldkonunnar Höllu Eyjólfsdóttur
Í Gerðubergi 17. október til 10. janúar

Halla EyjólfsdóttirHallfríður Guðrún Eyjólfsdóttir fæddist að Múla við Gilsfjörð 11. ágúst 1866 og ólst þar upp við þröngan kost. Foreldrar hennar eignuðust 14 börn og komust 9 þeirra á legg.  Tvítug réðst Halla sem vinnukona að Laugabóli við Ísafjörð í Ísafjarðardjúpi. Þar giftist hún fjórum árum síðar Þórði Jónssyni frá Laugabóli og eignuðust þau 14 börn. Þrjú barnanna misstu þau úr barnaveiki sumarið 1904. Þórður sótti sjóinn frá Bolungarvík þar sem hann var formaður á eigin skipi og kom því í hlut Höllu að stjórna búinu, jafnt utan dyra sem innan.

 

Skáldskapurinn átti hug Höllu allan og meðfram bústörfunum skrifaði hún ljóð. Eftir hana liggja tvær ljóðabækur, Ljóðmæli, sem kom út árið 1919 og Kvæði frá árinu 1940. Þekktust er Halla án efa fyrir ljóðin Svanurinn minn syngur  og Ég lít í anda liðna tíð sem bæði eru við lög eftir tónskáldið Sigvalda Kaldalóns.

Sýningin Svanurinn minn syngur var fyrst sett upp af Guðfinnu M. Hreiðarsdóttur í Safnahúsinu á Ísafirði haustið 2008. Þar er varpað ljósi á líf og ljóð skáldkonunnar Höllu. Í tengslum við sýninguna var gefin út bókin Svanurinn minn syngur með úrvali ljóða Höllu og æviágripi hennar. Sýningin og útgáfa bókarinnar var lokaverkefni Guðfinnu í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands.

Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, f. 3. apríl 1966 í Reykjavík. Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1986, BA-prófi frá Háskóla Íslands 1991og MA-námi í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands 2009. Hún hefur lengstum starfað við ýmiss konar ritstörf, einkum um sagnfræðileg efni en hefur einnig starfað sem blaðamaður. Hún hefur jafnframt unnið og sett upp sýningar þar sem viðfangsefnið er fortíðin og sagan frá ýmsum sjónarhornum. Guðfinna er gift Halldóri Halldórssyni og eiga þau þrjú börn. Þau eru búsett á Ísafirði.
 

Við opnun sýningarinnar verður flutt tónlistardagskráin Óður til Höllu Eyjólfsdóttur.

 

 

2009