Sigurbjörg Sigurjónsdóttir
14. nóvember - 10. janúar
Í Boganum: Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, alþýðulistakona, sýnir málverk
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir er fædd í Reykjavík á kvennadaginn árið 1937 og er ein átta systkina. Hún giftist ung húsasmíðameistaranum Haraldi Sumarliðasyni og eignuðust þau fimm börn.
Sigurbjörg var alla tíð listhneigð og byrjaði að sækja námskeið hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík árið 1970. Hún var þar á kvöldnámskeiðum um 10 ára skeið og lærði m.a. pastel-, vatnslita- og olíumálningu. Sigurbjörg stundaði fjarnám í pastelmálun við skóla í Skotlandi og sótti auk þess námskeið í portrett- og postulínsmálun.
Sigurbjörg starfaði um árabil með hópi áhugafólks um myndlist sem kallaðist Myndlistarklúbbur Hvassaleitis. Í hópnum voru um þrjátíu aðilar sem hittust vikulega undir leiðsögn kennara og tóku þátt í samsýningum. Um 1990 fór Sigurbjörg að kenna postulínsmálun, fyrst heima hjá sér en síðast liðin 7 ár hefur hún kennt í Félagsstarfinu í Gerðubergi.
Auk myndlistarinnar á Sigurbjörg sér fjölbreytt áhugamál. Hún var einn af stofnendum Bjarkanna, sem er félag eiginkvenna húsasmíðameistara. Einnig stóð Sigurbjörg að stofnun kvennadeildar golfklúbbsins Kiðjabergs en hún stundar golf í frístundum.
Sýningin í Boganum er önnur einkasýning Sigurbjargar en hún hefur tekið þátt í mörgum samsýningum.
Sjá yfirlit yfir sýninga í Boganum
2009