Gerðuberg

 

Reykjavík jazz performance workshop


Vinnustofur fyrir ungliða í jazztónlist
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi dagana 17. - 20. ágúst frá kl. 10:00 – 13:00
Kennarar: Benjamin Koppel, Hilmar Jensson og Jim Black.
Í samstarfi við
Jazzhátíð Reykjavíkur.

JazzhátíðÍ vinnustofunum verða þrjú jazzbönd undir leiðsögn kennaranna Benjamin Koppels, Hilmars Jenssonar og Jim Black.
Vinnustofurnar eru hluti af Jazzhátíð Reykjavíkur sem heldur uppá 20 ára afmæli sitt í ár.
Ætlunin er að yfirgefa hefðbundið akademískt umhverfi og vinna út frá listrænum sjónarmiðum. Þátttakendur fá tækifæri til að læra af tónlistarmönnum í heimsklassa og öðlast ómetanlega reynslu; einskonar „real life situation”. Þátttakendur í vinnustofunum verða böndin Reginfirra, Kvartet Leifs og Trans kvintett.

Afraksturinn verður kynntur á hádegistónleikum í Gerðubergi og verður hægt að fá heitan mat í veitingastofu Gallerí Fisks. Í kjölfar vinnustofanna verður boðið uppá Masterclass á Kjarvalsstöðum með kennurunum og að því loknu verður stutt spjall við kennarana þar sem þeir ræða um tónlist sína og spila af nýjum og gömlum plötum.
Lokatónleikarnir með hljómsveitum vinnustofunnar verða á Rósenberg 20. ágúst kl. 21.00.

Þátttakendur:
Reginfirra; Kristján Martinsson Frewer, Daníel Friðrik Böðvarsson, Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson og Ingimar Andersen.
Kvartet Leifs; Leifur Gunnarsson, Hjörtur Steinarsson, Ari Bragi Kárason og Magnús Tryggvason Elíasen.
Trans kvintett; Sigmar Þór Matthíasson, Ingi Bjarni Skúlason, Hlynur Stefánsson, Örvar Erling Árnason, Helgi Rúnar Heiðarsson.

Nánari upplýsingar veita Leifur Gunnarsson, leifurgunnarsson@gmail.com, s. 868 9048 og Hólmfríður Ólafsdóttir, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is, 575 7703.

2009