Dagur hljóðfærisins - Píanóið í öndvegi
Sunnudaginn 3. október efnir FÍT - Félag íslenskra tónlistarmanna - til viðamikillar dagskrár til heiðurs píanóinu, í samstarfi við Menningarmiðstöðina í Gerðubergi. Dagskráin nefnist – Píanóið í öndvegi – og er hin sjöunda í röð slíkra hljóðfæradaga á vegum þessara aðila. Þátttakendur eru tuttugu píanóleikarar úr röðum FÍT auk gesta, og eru meðal þeirra margir af þekktustu listamönnum þjóðarinnar.
Þátttakendur eru: Aladár Rácz, Anna Áslaug Ragnarsdóttir, Anna Málfríður Sigurðardóttir, Atli Heimir Sveinsson, Árni Heimir Ingólfsson, Ástríður Alda Sigurðardóttir, Daníel Þorsteinsson, Guðríður St. Sigurðardóttir, Hólmfríður Sigurðardóttir, Halldór Haraldsson, Jón Sigurðsson, Kristinn Örn Kristinsson, Lára Rafnsdóttir, Miklós Dalmay, Nína Margrét Grímsdóttir, Richard Simm, Sólveig Anna Jónsdóttir, Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Tinna Þorsteinsdóttir, Valgerður Andrésdóttir, Þorsteinn Gauti Sigurðsson, Þóra Fríða Sæmundsdóttir, Þórarinn Stefánsson og Örn Magnússon.
Sjá dagskrá...
Kynnir verður Margrét Bóasdóttir, formaður FÍT. Allt áhugafólk um píanóleik og píanónám er boðið velkomið.
Dagskráin hefst kl. 13:30 með tónlistarflutningi í anddyri Gerðubergs og mun standa samfellt til kl. 18:00. Deginum er ætlað að kynna píanóið sem einleikshljóðfæri og einnig sem eitt vinsælasta hljóðfæri tónlistarskólanna og er dagskráin því samsett úr þremur meginþáttum: tónleikar þar sem flutt verða einleiksverk fyrir píanóið frá ýmsum tímabilum tónlistarsögunnar, stutt erindi um píanótónlist ýmissa tónskálda og sýnishorn úr kennslustundum grunnstigs, miðstigs og framhaldsstigs píanónáms.
Gestum píanódagsins mun gefast einstakt tækifæri til að fylgjast með kennslu í píanóleik á ýmsum stigum og enn fremur verður tekið við fyrirspurnum áheyrenda.
Hápunktur dagskrárinnar Píanóið í öndvegi hefst kl. 16:15 í aðalsal Gerðubergs þegar átján píanóleikarar munu flytja allar 24 prelúdíur Chopins. Telja má víst að þessi flutningur verði einstakur með tilliti til fjölda píanóleikaranna. Verkin eru sjaldan flutt í heild og aldrei svo vitað sé af fleirum en einum píanóleikara á sömu tónleikum. Dagskránni lýkur með flutningi á ýmsum verkum fyrir tvö píanó og fleiri en einn flytjanda.
Í anddyri Gerðubergs verður leikin létt píanótónlist og þar verður kynning á hljóðfærum og námi í píanóleik. Gestum gefst einnig kostur á að prófa píanó sér til ánægju.
Hljóðfæraverslun Leifs Magnússonar og Hljóðfærahúsið styrkir dagskrána.
2009