Viðburðadagatal 1999
JANÚAR
10.-31.janúar
Myndlistarmaðurinn Alan James sýnir á neðri hæð Gerðubergs.
16. janúar
Blásarakvintett Reykjavíkur: Tónleikar og málþing um Jón Leifs á Myrkum músíkdögum 1999.
Á efnisskrá eru m.a. verk eftir Jón Leifs, Pál P. Pálsson, Jón Ásgeirsson, John Cage og Diana Burell.
Flytjendur: Bernharður Wilkinsson, flauta, Daði Kolbeinsson, óbó, Einar Jóhannesson, klarinett, Jósef Ognibene, horn og Hafsteinn Guðmundsson, fagott.
Á málþinginu verður fjallað um Jón Leifs frá þremur sjónarhornum. Jón Leifs sem tónskáld og baráttumaður og loks maðurinn Jón Leifs. Meðal þátttakenda: Atli Heimir Sveinsson, Hjálmar R. Ragnarsson og Sigurður A. Magnússon.
FEBRÚAR
6. febrúar
Þetta vil ég sjá!
Nýstárlegar myndlistarsýningar hefja göngu sína árið 1999 sem bera nafnið "Þetta vil ég sjá!" Sá sem ríður á vaðið er Kári Stefánsson forsjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Þessar sýningar verða ólíkar öðrum myndlistarsýningum að því leyti að fengnir verða leikmenn og áhugamenn um myndlist til að velja verk eftir núlifandi myndlistarmenn til sýningar í Gerðubergi.
21. febrúar
Brúðuleikhúsið Gadesjakket sýnir Þumalínu eftir H.C. Andersen
Pia Gredal og Lars Holmsted sem leika, syngja og spila í sýningunni starfa við leikhúsið Gadesjekket í Óðinsvéum. Þau hafa lengi unnið við barnaleikhús og sem námskeiðshaldarar fyrir leikskólakennara, grunnskólakennara og aðra sem vinna með börnum.
22.-26. febrúar
Ævintýranámskeið og trumbusláttur
Pia Gredal og Lars Holmsted sem leika, syngja og spila í sýningunni Þumalínu halda tvö námskeið í Gerðubergi.
Inn í ævintýrið! - Ævintýri í leikrænni tjáningu með börnum.
Tónlist, taktur og dans - Trommur, ryþmaleikir og afrískir dansar.
Námskeiðin eru ætluð fullorðnum og þá sérstaklega fólki sem vinnur með börnum.
MARS
6. mars - 9. maí
Hjartans list - Næfistar.
Þátttakendur: Svava Skúladóttir, Hjörtur Guðmundsson og Kíkó Korriró ofl.
Sumir listamenn hafa þá náðargáfu að geta miðlað sýn sinni af svo töfrandi falsleysi að ekki er hægt annað en að hrífast af. Einlægni þeirra og tilfinningahiti leiftrar af striganum og hittir áhorfandann í hjartastað.
13. - 14. mars
Masterklass í Gerðubergi
Íslandsdeild EPTA (Evrópusamband píanókennara) standa fyrir námskeiði í píanóleik fyrir byrjendur sem og lengra komna.
Leiðbeinendur: Sigríður Einarsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir og Peter Maté.
27. mars
Ritþing með Guðbergi Bergssyni
Þingunum er ætlað að veita persónulega innsýn í feril þekktra íslenskra rithöfunda með það fyrir augum að endurskoða framlag þeirra og rifja upp farinn veg. Guðbergur er fyrsti rithöfundurinn sem kemur fram á ritþingi
APRÍL
14. - 15. apríl
Söng- og raddþjálfun fyrir byrjendur!
Kennari: Ingveldur Ýr Jónsdóttir, mezzósópran
17. apríl
Dagur flautunnar í Gerðubergi. Kynning á flautunni í tali og tónum.
Leikin verða mörg þekkt verk flautubókmenntanna og áhugaverð og sjaldheyrð verk frá Endurreisnartímabilinu til dagsins í dag. Frumflutt verður verk eftir Charles Ross fyrir 25 flautur sem samið er sérstaklega í tilefni dagsins.
Flautuleikarar: Áshildur Haraldsdóttir, Bernharður Wilkinsson, Camilla Söderberg, Guðrún Birgisdóttir, Hallfríður Ólafsdóttir, Kolbeinn Bjarnason og Martial Nardeau.
Meðal gestaflytjenda: Peter Máté, Miklós Dalmay, Snorri Örn Snorrason, Margrét Bóasdóttir, Guðmundur Kristmundsson, Hildigunnur Halldórsdóttir, Sigurður Halldórsson, Richard Korn, Kjartan Óskarsson, Flautukórinn „Mammút“ og flautunemendur.
20. apríl
Líf mitt er í mínum höndum. Fyrirlestur um það hvernig við sköpum okkar eigið líf.
Leiðbeinandi: Vilhelmína Magnúsdóttir.
23.apríl
Myndlistarsýning: Þorgímur Kristmundsson (Toggi)
23. apríl - 30. apríl
Menningarvika í Félagsstarfinu
Fjölbreyttar menningaruppákomur. Félag heyrnarlausra, Blindrafélagið og Miðstöð Nýbúa verða með kynningu á starfsemi sinni og boðið verður upp á dagskrá um Halldóru Bjarnadóttur, skólastjóra og ritstjóra kvennablaðsins Hlínar; farið verður í menningarferð austur í Vík í Mýrdal og fleira.
24. apríl
Í sagnaheimi. Ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir.
Þuríður Jóhannsdóttir, bókmenntafræðingur: Um bóklestur í sagnaheimi skjámiðla
Hildur Heimisdóttir, kennari: Veruleikinn í nýlegum íslenskum barnabókum
Áslaug Jónsdóttir, myndlistarmaður og Sigurborg Stefánsdóttir, myndlistarkennari: Bókin á borði teiknarans
Fulltrúar frá bókaforlögunum Máli og menningu, Skjaldborg, Vöku-Helgafelli og Æskunni ræða útgáfu barna- og unglingabóka.
Stjórnandi: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, formaður Rithöfundasambands Íslands
24. apríl
Sköpunardagur - Námskeið
Langar þig að gefa sköpunargleðinni lausan tauminn og leika þér eins og þegar þú varst barn? Langar þig að losa um höftin sem fylgja hversdagslífinu? Við ætlum að mála, semja sögur og leika heilan dag undir leiðsögn Helgu Arnalds brúðuleikara. Námskeiðið er ætlað fullorðnum.
24. - 25. apríl
Líf mitt er í mínum höndum.Helgarnámskeið.
MAÍ
15. maí - 27. ágúst
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda og Fantasi Design.
Sýning á teikningum og líkönum úr Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda. Keppnin er haldin í áttunda sinn og verður nú í samvinnu við Fantasi Design sem er samnorrænt hönnunarverkefni barna og unglinga. Í ár tengist Nýsköpunarkeppnin samnorrænu hönnunarverkefni, Fantasi Design, á þann hátt að teikningar íslenskra barna og unglinga fara fyrir norræna dómnefnd í haust ásamt teikningum barna frá hinum Norðurlöndunum. Bestu hugmyndirnar verða síðan með á stórri hönnunarsýningu með teikningum og frumgerðum sem opnuð verður í Kalmar Slott í Svíþjóð 1. apríl 2000. Sýningin ferðast um Norðurlöndin og verður opnuð í Gerðubergi 1. september 2000.
29. maí
Ritþing Gerðubergs. - Lifandi leikskáld. Árni Ibsen.
Stjórnandi: Hávar Sigurjónsson leikhúsfræðingur. Spyrlar: Sveinn Einarsson og Hlín Agnarsdóttir.
JÚNÍ - ÁGÚST
Listsmiðjur Gerðubergs - Gagn og gaman
myndsmiðjur - tónsmiðjur - leiksmiðjur
Leiðbeinendur: Sigríður Ólafsdóttir, myndlistarmaður, Hilmar Þórðarson, tónlistarmaður, Þórey Sigþórsdóttir, leikari, Margrét Örnólfsdóttir, tónlistarmaður, Sigurþór A. Heimisson leikari, Valborg S. Ingólfsdóttir, myndlistarmaður og Arna G. Valsdóttir, myndlistarmaður.
SEPTEMBER
4. september
Sjónþing Þorvaldar Þorsteinssonar
Stjórnandi: Sigmundur Ernir Rúnarsson. Spyrlar: Þórhildur Þorleifsdóttir og Jón Proppé.
24. september
Helga Þórðardóttir sýnir í Félagsstarfi Gerðubergs
25. september
Ritþing. Guðrún Helgadóttir
Stjórnandi: Illugi Jökulsson.
OKTÓBER
9. október
"Ekkert er fallegra en gítar, nema þá tveir." Chopin.
Gítartónleikar til heiðurs Gunnari H. Jónssyni.
Gunnar er fæddur 1929 og er einn af frumkvöðlum klassískrar gítartónlistar á Íslandi. Nokkrir af okkar helstu gítarleikurum leika honum til heiðurs á þessum tónleikum.
23. október - 14. nóvember
"Þetta vil ég sjá!" Friðrik Þór Friðriksson og myndlistin
NÓVEMBER
20. nóvember - 9. janúar
Sjónþing Eiríks Smith listmálara
28. nóvember
Viltu lesa fyrir mig?
Bókaormum og lestrarhestum á öllum aldri er boðið í Gerðuberg til að hlýða á barnabókahöfunda lesa úr nýútkomnum verkum sínum.