Gerðuberg

 

Viðburðadagatal 1998


JANÚAR

27. janúar

Tónleikar á fæðingardegi Wolfgangs Amadeusar Mozarts
Flytjendur: Laufey Sigurðardóttir fiðla, Junah Chung víóla, Paul R. Kellett selló, Guðrún Birgisdóttir flauta og Peter Máté píanó.


FEBRÚAR

3. febrúar

Tónleikar - Blásarakvintett Reykjavíkur ásamt Miklós Dalmay píanóleikara
Eingöngu voru flutt íslensk verk í tilefni þess að STEF á 50 ára afmæli um þessar mundir.
Flytjendur: Bernharður Wilkinson flauta, Daði Kolbeinsson óbó, Einar Jóhannesson klarinett, Jósef Ognibene horn, Hafsteinn Guðmundsson fagott og Milós Dalmay píanó.

10. febrúar - 29. mars

Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum
Nýlokið er kynningu á íslenskri barnamenningu í Kaþólsku Akademíunni í Hamborg. Gerðuberg annaðist val á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum ásamt fulltrúum FÍT. Á sýningunni eru jafnframt verk úr safni Listsmiðju barna „Gagn og gaman“. Sýningin verður nú sett upp í Gerðubergi.

14. febrúar

Tónleikar
Davíð Art Sigurðsson baríton, Ólafur Vignir Albertsson píanó. Fluttar verða aríur og sönglög.

15. febrúar

Tónleikar
Vörðukórinn úr Árnessýslu
Stjórnandi Margrét Bóasdóttir

22. febrúar og 1. mars

Dimmalimm - barnatónleikar
Í tengslum við sýninguna "Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum" verður flutt dagskrá úr hinu gullfallega ævintýri Dimmalimm við tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson.
Flytjendur: Guðrún Birgisdóttir flauta, Peter Máté píanó og Harpa Arnardóttir leikari.

25. febrúar

Öskudagur í Gerðubergi
Á Öskudaginn verður samkvæmt hefð mikið um að vera í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Hinir sívinsælu Fjörkarlar leika fyrir dansi.

 

MARS

3. mars

Ljóðatónleikar Gerðubergs
Loftur Erlingsson baríton og Gerrit Schuil píanóleikari.

6. mars

Guðfinna Kristín Guðmundsdóttir sýnir í Félagsstarfi Gerðubergs

22. mars

Dagur hljóðfærisins - Gítar í Gerðubergi
Kynning á gítarnum í tali og tónum.
Samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og Félags íslenskra tónlistarmanna. Flytjendur: Einar Kristján Einarsson, Kristinn Árnason, Páll Eyjólfsson, Pétur Jónasson og Símon Ívarsson ásamt öðrum hljóðfæraleikurum.

 

APRÍL

4. apríl - 17. maí

Sjónþing Huldu Hákon
Umsjónarmaður. Hannes Sigurðsson listfræðingur. Spyrlar: Halldór Björn Runólfsson listfræðingur og Egill Helgason fjölmiðlamaður.
Opnaðar verða sýningar í Gerðubergi og í Galleríi Sævars Karls

14. apríl

Tónleikar - Strengjakvartett
Auður Hafsteinsdóttir 1. fiðla, Gréta Guðnadóttir 2. fiðla, Guðmundur Kristmundsson víóla og Bryndís Halla Gylfadóttir selló.
Efnisskrá: Edvard Grieg: Strengjakvartett í F-dúr, op. post. Igor Stravinsky: Þrjú verk fyrir strengjakvartett. Ludwig van Beethoven: Kvartett í F-dúr, op. 135.

18. apríl

Ljóðatónleikar Gerðubergs
Alina Dubik alt, og Gerrit Schuil píanóleikari. Á efnisskránni verða verk eftir Fauré, Tsjajkovsky, Rimsky-Korsakov, Borodin og Glinka.

28. apríl

Tóndansmynd
Um það bil klukkutíma langur gjörningur, þar sem tvinnaðar eru saman þrjár listgreinar; tónlist, dans og myndlist. Áhorfandinn er leiddur inn í framandi og draumkenndan heim þar sem hversdagurinn er ekki lengur til staðar en fantasían og fornir draumar taka yfirhöndina.
Höfundar og flytjendur eru: Guðni Franzson tónlistarmaður, Lára Stefánsdóttir dansari og Ragnhildur Stefánsdóttir myndlistarmaður.

Apríl-Maí

Daglegt líf unglinga - Ljósmyndaverkefni með þátttöku unglinga.
Umsjón: Anna Líndal myndlistarmaður. Afrakstur verkefnisins verður sýndur í tengslum við sýninguna "Sópaðu aldrei síðdegis"

 

MAÍ

2. maí

Tónleikar
Davíð Art Sigurðsson baríton, Ólafur Vignir Albertsson píanó. Fluttar verða aríur og sönglög.

5. maí

Nemendatónleikar
Nemendur úr Tónlistarskóla Reykjavíkur koma fram.

12. maí

Tónleikar
Blásarakvintett Reykjavíkur.

21. maí - 20. júní

ODELLA - að lifa af. Ljósmyndir efitt Carlotu Duarte.
Ljósmyndasýning í samstarfi við Listahátíð 1998.
Sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir.

21. maí - 20. júní

"Sópaðu aldrei síðdegis". Ljósmyndir Maya-indjána frá Chiapas í Mexíkó.
Ljósmyndasýning í samstarfi við Listahátíð 1998.
Sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir.

24. - 31. maí

Handavinnusýning í Félagsstarfinu

 

JÚNÍ - ÁGÚST

Listsmiðjur barna "Gagn og gaman" í Gerðubergi
Boðið verður upp á myndsmiðjur, tónsmiðjur og leiksmiðjur

 

SEPTEMBER

5. september - 25. október

Sjónþing Kristins Harðarsonar
Spyrlar: Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur og Ingólfur Arnarson myndlistarmaður. Umsjónarmaður: Hannes Sigurðsson. Gestastjórnandi: Hildur Helga Sigurðardóttir.
Sýningar opnaðar í Gerðubergi og í Galleríi Sævars Karls (lýkur 30. september) í Bankastræti.

12. - 13. september

Langar þig að kynnast röddinni þinni? - Söng- og raddþjálfun fyrir byrjendur.
Ingveldur Ýr Jónsdóttir, mezzósópran heldur hressileg söngnámskeið í vetur þar sem nemendum er gefin innsýn í söng, raddbeitingu og tónlist.

18. september

Björg Ísaksdóttir sýnir í Félagsstarfi Gerðubergs

26. september

Ert þú mamma mín?
Brúðuleikhúsið Sögusvuntan frumsýnir nýjan brúðuleik eftir Hallveigu Thorlacius.
Með þessari sýningu seilist Sögusvuntan inn í hugarheim allra minnstu áhorfendanna með hæfilega einföldum söguþræði, brúðum og tónlist. Þetta er í fyrst sinn hér á landi sem leikhúsi er ætlað að höfða til barna frá rúmlega eins árs aldri. Marion Herrera aðstoðar í sýningunni. Leikstjóri: Bernd Ogrodnik. Leikmynd og brúður: Peter Maásek.

 

OKTÓBER

3. október

Gerðubergstónleikar: Tatu Kantoma harmonikkuleikari

15. október

Dansleikur í Gerðubergi
Á vegum Félagsstarfsins

31. október - 31. desember

Sjónþing Hannesar Lárussonar
Opnaðar verða sýningar í Gerðubergi og í Galleríi Sævars Karls (stendur til 25. nóvember) í Bankastræti.

 

NÓVEMBER

8. nóvember

Ljóðatónleikar Gerðubergs
Alina Dubik, alt og Gerrit Schuil, píanóleikar koma fram. Á efnisskránni verða verk eftir Fauré, Tsjaikovsky, Rimsky-Korsakov, Bododin og Glinka.

22. nóvember

Tónlist og sögur fyrir börn
Síðasta sunnudag fyrir aðventu býður Gerðuberg börnum og foreldrum, öfum og ömmum, og öðrum sem hafa hug á að kaupa barnabók fyrir jólin að koma og hlýða á höfunda lesa upp úr nýúrkomnum barnabókum. Sérstakur gestur verður píanóleikarinn Jónas Ingimundarson sem leikur af fingrum fram.

Mánaðarmótin nóvember-desember

Málþing hljóðnandi radda - Leikhúsið Bak við eyrað
Leikverkið er unnið úr óljósum minningarbrotum af fólki úr fortíðinni. Persónur þess eru litríkar mannverur og eiga það allar sameiginlegt að  hafa búið við nokkra einangrun frá umheiminum í langan tíma.
Handrit og leikstjórn: Ása Hlín Svavarsdóttir
Leikendur: Helga Braga Jónsdóttir og Ólafur Guðmundsson

 

DESEMBER

Desember 1998 - apríl 1999

Ásta Erlingsdóttir sýnir í Bogagangi Félagsstarfsins

2011