Gerðuberg

 

Viðburðadagatal 1997


JANÚAR

5. janúar

Ljóðatónleikar Gerðubergs
Gunnar Guðbjörnsson tenór og Jónas Ingimundarson píanóleikari. Á efnisskrá verður m.a. Dichterliebe eftir Schumann, lög úr ljóðaflokknum Clairieres dans le ciel eftir Lili Boulanger og þekkt ítölsk sönglög.

27. janúar

Tónleikar - Afmæli Wolfgangs Amadeusar Mozarts
Sigríður Gröndal, sópran, Laufey Sigurðardóttir, fiðla, Daníel Þorsteinssonl, píanó, Guðmundur Kristmundsson, víóla og Richard Talkowsky, selló. Flutt verða tvö kammerverk en auk þess úrval laga við þýsk, frönsk og ítölsk ljóð.

28. janúar

Gagn og gaman -  Leiksmiðja
Stendur til 22. mars, tvisvar í viku
Leiðbeinandi Þórey Sigþórsdóttir leikkona

29. janúar

Gagn og gaman - Tónsmiðja
Stendur til 22. mars, tvisvar í viku
Leiðbeinandi Guðni Franzson tónlistarmaður.

 

FEBRÚAR

1. febrúar

Gagn og gaman - Myndsmiðja
Stendur til 22. mars, tvisvar í viku
Leiðbeinandi Sigríður Ólafsdóttir myndlistarmaður

2. febrúar

Tónleikar: Áshildur Haraldsdóttur flautuleikari o.fl.
Flutt verða verk fyrir flautu og slagverk

9. febrúar

Sjónþing Finnboga Péturssonar
Sýning á verkum hans opnuð í Gerðubergi og á Sjónarhóli.

12. febrúar

Öskudagur - Grímuball fyrir börn
Á öskudaginn verður, samkvæmt hefð, mikið um að vera í Gerðubergi. Húsið fyllist af undarlegum verum af öllum stærðum og gerðum sem sleppa fram af sér beislinu í villtum dansi og leik. Hljómsveit sér um að halda uppi fjörinu, kötturinn verður sleginn úr tunnunni, boðið verður upp á andlitsmálningu o.fl.

21. febrúar

Myndlistarsýning: Kristján Fjeldsted sýuir í Félagsstarfi Gerðubergs

 

MARS

Vatnslitamyndir - samsýning í Félagsstarfi Gerðubergs
Afrakstur af námskeiði Guðfinnu Hjálmarsdóttur

9. mars

Dáið þér Beethoven?
Tónleikar kl. 17.00. Fyrri hluti.
Daníel Þorsteinsson píanóleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari flytja fimm sónötur og þrenn tilbrigði Beethovens fyrir píanó og selló.

22. mars

Gagn og gaman - Lokasýning vetrarsmiðju 

 

APRÍL

6. apríl

Sjónþing Magnúsar Tómassonar
Sýning á verkum hans opnuð í Gerðubergi og á Sjónarhóli.

20. apríl

Dáið þér Beethoven?
Tónleikar kl. 17.00. Síðari hluti.
Daníel Þorsteinsson píanóleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari flytja sónötur og tilbrigði Beethovens fyrir píanó og selló.

 

MAÍ

30. maí

Myndlistarsýning: Jón Jónsson sýuir í Félagsstarfi Gerðubergs

 

ÁGÚST

16. ágúst

Ljóðatónleikar Gerðubergs - Íslenska einsöngslagið í Borgarleikhúsinu
Björn Jónsson tenór, Gunnar Guðbjörnsson tenór, Elsa Waage alt, Finnur Bjarnason baritón, Hanna Dóra Sturludóttir sópran, Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzósópran, Þóra Einarsdóttir sópran og Judith Gans gestasöngkona frá Texas. Jónas Ingimundarson lék með á píanó en hann undirbjó einnig og tók saman dagskrá tónleikanna.

 

OKTÓBER

18. október

Myndlistarsýning: Eggerts Magnússon naívisti - Rostungar, hafís og ljón 
Sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir.

19. október

Tónleikar: Kammer- og ljóðatónlistarátíð haustið 1997
Brahms: ljóðasöngur
Flytjendur: Þórunn Guðmundsdóttir sópran og Kristinn Örn Kristinsson píanó.

 

NÓVEMBER

7. nóvember - 9. febrúar

Myndlistarsýning: Ragnar Erlendsson sýnir vatnslitamyndir í Félagsstarfi Gerðubergs

9. nóvember

Tónleikar: Kammer- og ljóðatónlistarhátíð haustið 1997
Schubert: Sönglög og einleiksverk fyrir píanó.
Brahms: Sónata fyrir víólu og píanó.
Flytjendur: Sigríður Gröndal sópran, Daníel Þorsteinsson píanó, Ármann Helgason klarinetta, Valgerður Andrésdóttir píanó, Guðrún Þórarinsdóttir víóla og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó.

15. nóvember

Gleymið ekki börnunum
Helga Hannesdóttir barna- og unglingageðlæknir fjallar um skilnað, áhrif hans á börn og hvernig er best að styðja börnin við skilnað foreldra.

16. nóvember

Tónleikar: Kammer- og ljóðatónlistarhátíð haustið 1997
Schubert og Brahms: Ljóðasöngur.
Flytjendur: John A. Speight baríton og Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir píanó.

23. nóvember

Tónleikar: Lög úr líf og leikhúsi
Söngtónleikar - Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzósópran og Gerrit Schuil píanóleikari flytja sönglög eftir Atla Heimi Sveinsson, Enrique Granados, Kurt Weill og aríur úr bandarískum óperum.

29. nóvember

Gleymið ekki börnunum II
Fyrirlestur fyrir börn á aldrinum 7-14 ára. Helga Hannesdóttir barna- og unglingageðlæknir fjallar um tilfinninga- og reynsluheim barnsins við skilnað og hvað áhrif hann hefur á sjálfsmynd þeirra.

29. nóvember - 18. janúar

Valdimar Bjarnfreðsson - málverkasýning
Sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir.

2011