Gerðuberg

 

Viðburðadagatal 1996


FEBRÚAR

4. febrúar

Ljóðatónleikar Gerðubergs
Anna Sigríður Helgadóttir, mezzósópran og Gerrit Schuil, píanóleikari flytja tónlist eftir B. britten, Dvorák, Gunnar Reyni Sveinsson og Jerome Kern, Richard Rogers, Cole Porter og George Gerzhwin.

10. febrúar

Sjónþing hefja göngu sína í Gerðubergi
Þann 10. febrúar hefst röð kynninga á núlifandi íslenskum myndlistarmönnum. Á Sjónþingum í Gerðubergi verður fjallað um list þeirra og feril í máli og myndum. Fjallað verður um þróun, hugmyndafræði, áhrifavalda, viðhorf, gagnrýni, einstök verk og sýningar. Listamanninum til halds og trausts verða spyrlar sem ásamt gestum í sal fá tækifæri til að leggja spurningar fyrir listamanninn. Með þessu móti er hægt að fá heilsteypta innsýn í myndheim viðkomandi listamanns á mjög persónulegan og upplýsandi hátt.

10. febrúar - 3. mars

Sýningar Braga Ásgeirssonar í Gerðubergi og á Sjónarhóli.

11. febrúar

Sjónþing með Braga Ásgeirssyni 

18. febrúar

Tónleikar Vörðukórsins úr uppsveitum Árnessýslu
Dagskrá úr verkum Halldórs Laxness og Davíðs Stefánssonar.Undir stjórn Margrétar Bóasdóttur.

20. febrúar

Ljóðatónleikar Gerðubergs í Borgarleikhúsinu.
Kristinn Sigmundsson bassabaritón, Jónas Ingimundarson píanóleikari og Arnar Jónsson leikari. Fluttur verður lagaflokkurinn „Die Schöne Magelone“ op. 33 eftir Johannes Brahms. Á tónleikunum mun Arnar Jónsson leikari lesa stytta útgáfu sögunnar.

21. febrúar

Öskudagur. Grímuball fyrir börn. Hljómsveitin Fjörkarlar sjá um fjörið..

 

MARS

3. mars

Dagur leikbrúðunnar. „Brúður, tónlist og hið óvænta...“
Brúðuleikhúsmaðurinn Bernd Ogrodnik sækir okkur heim með einstæðar sýningar sína. Bernd ætti að vera Íslendingum að góðu kunnur en hann er hönnuður Pappírs Pésa. Undanfarin ár hefur hann starfrækt eigið brúðuleikhús í New York við góðan orðstír. Sýning fyrir alla fjölskylduna kl. 14 og 16.

3. mars

Dagur leikbrúðunnar. „Næturljóð“
Sýning fyrir fullorðna kl. 20.30.

9. mars - 31. mars

Sýningar Ragnheiðar Jónsdóttur í Gerðubergi og á Sjónarhóli

10. mars

Sjónþing Ragnheiðar Jónsdóttur 

24. mars

Ljóð og djass
Dagskrá í umsjón ungra ljóðskálda og eldri "djassgeggjara" 

 

APRÍL

13. apríl - 5. maí

Sýningar Birgis Andréssonar í Gerðubergi og á Sjónarhóli.

14. apríl

Sjónþing Birgis Andréssonar 

25. apríl

Sumardagurinn fyrsti - Sígildir tónleikar fyrir börn
Hátíð íslenskra barna er sumardagurinn fyrsti og þá höfum við í Gerðubergi alltaf gert okkur dagamun. í ár ætlum við að kveðja veturinn og heilsa sumri með sígildum tónleikum fyrir börn. Það verður tónsmiðurinn Hermes sem leiðir börnin um undraveröld tónlistarinnar.

27. apríl

Tónleikar Karlakórs slökkviliðsins

 

MAÍ

5. maí

Ljóðatónleikar Gerðubergs
Ingibjörg Marteinsdóttir sópran og Jónas Ingimundarson píanóleikari flytja tónlist eftir Richard Strauss og Gustav Mahler auk laga við vorljóð íslenskra skálda.

11. maí - 2. júní

Sýningar Hafsteins Austmanns opnaðar í Gerðubergi og á Sjónarhóli.

12. maí

Sjónþing Hafsteins Austmanns

12. - 13. maí

Myndlistarsýning: Kristín Bryndís Björnsdóttir kynnir verk sín í Félagsstarfi Gerðubergis

 

SEPTEMBER

8. september - 6. október

Sjónþing Brynhildar Þorgeirsdóttur
Sýningar á verkum hennar opnaðar í Gerðubergi og á Sjónarhóli

21. september

Tónleikar fyrir börn -Tónsmiðurinn Hermes leiðir börnin um undraveröld tónlistarinnar
Gríska goðsagnaveran Hermes bjó til fyrsta hljóðfærið úr skjaldbökuskel; hann heillaði síðan goðin með leik sínum og alla tíð síðan hefur tónlistin heillað bæði goð og menn. Sérstakur gestu Hermesar á þessum tónleikum verður gítarleikarinn Einar Kr. Einarsson. Í gervi Hermesar er Guðni Franzson, klarinettuleikari.

22. september

Tónleikar fyrir börn endurteknir - Tónsmiðurinn Hermes

28. september

Myndlistarsýning: Hrefna Sigurðardóttir sýnir í Félagsstarfi Gerðubergs

 

OKTÓBER

13. október

Sjónþing Helgi Þorgils Friðjónsson
Sýningar á verkum hans opnaðar í Gerðubergi og á Sjónarhóli.

20. október

Tónleikar Gerðubergs - Bernadel kvartettinn
Flytjendur: Zbigniew Dubik, Gréta Guðnadóttir, Guðmundur Kristmundsson, Guðrún Th. Sigurðardóttir. Kvartettinn mun leika verk frá klassíska tímanum, rómantísk verk og verk samin á þessari öld. Hornleikarinn Josef Ognibene kemur fram með kvartettinum á þessum tónleikum.

 

NÓVEMBER

17. nóvember

Sjónþing Guðrúnar Kristjánsdóttur
Sýningar á verkum hennar opnaðar í Gerðubergi og á Sjónarhóli.

23. nóvember - 20. desember

Sýning á myndskreytingum úr norrænum barnabókum
Árið 1995 var norrænt myndlistarár og af því tilefni gekkst Samtímalistasafnið í Osló fyrir sýningu á myndskreytingum úr barnabókum eftir norræna teiknara. Sýningin hefur farið víða um Norðurlönd og verður nú í nóvember sett upp í Gerðubergi. Tveir teiknarar frá hverju landi taka þátt í sýningunni; fulltrúar Íslands eru þær Áslaug Jónsdóttir og Erla Sigurðardóttir.

 

DESEMBER

1. desember

Brúðuleikhúsið 10 fingur sýnir Jólaguðspjallið. Frumsýning.
Jólasýningar með strengjabrúðum eru taldar upphaf brúðuleikhúss í Evrópu. Á miðöldum þegar kirkjunnar mönnum þótti almenningur hlusta með of litlum áhuga á guðspjöllin var gripið til þess ráðs að setja strengi í líkneski og leika jólaguðspjallið. Það eru þær Helga Arnalds og Ása Hlín Svavarsdóttir sem standa að þessari sýningu.

2009