Gerðuberg

 

Viðburðadagatal 1995


JANÚAR

15. janúar - 12. febrúar

Myndlistarsýning: Hafdís Helgadóttir

21. janúar

Minningartónleikar um Davíð Stefánsson
Elín Ósk Óskarsdóttir sópran og Þorgeir J. Andrésson tenór flytja söngva við ljóð Davíðs.

 

FEBRÚAR

11. - 12. febrúar

Listbúðir í Gerðubergi - útilega innan borgarmarkanna.
Hópurinn mun vinna saman að afmörkuðu verkefni undir stjórn starfandi listamanna, borða saman, fara í gönguferðir og fleira skemmtilegt. Fyrir börn á aldrinum 9-12 ára.

19. febrúar - 19. mars

Tónsmiðjan - Klassískir tónleikar I -  Tónlistardagskrá ætluð börnum á aldrinum 3 - 10 ára.
Markmið Tónsmiðjunnar er að hvetja börn til virkrar hlustunar og þátttöku í tónlist og sýna þeim fram á hversu nálæg tónlistin er okkur en ekki síður að skapa ánægjulega og eftirminnilega stemningu með yngstu hlustendunum.
Undir stjórn Guðna Franzsonar klarínettuleikara.

19. febrúar - 19. mars

Myndlistarsýning - videóverk: Jessie Kleemann

26. febrúar

Tónsmiðjan - Klassískir tónleikar I endurteknir

 

MARS

1. mars

Öskudagur í Gerðubergi
Grímuball, kötturinn sleginn úr tunnunni, óvæntar uppákomur.

4. mars

Ljóðatónleikar Gerðubergs
Frumflutningur á einsöngslögum eftir tónskáldin Fjölni Stefánsson, Hildigunni Rúnarsdóttur, Hjálmar H. Ragnarsson, John Speight, Jón Ásgeirsson, Jón Hlöðver Áskelsson, Jónas Tómasson, Jón Þórarinsson, Oliver Kentish og Tryggva Baldvinsson. Flytjendur: Ingveldur Ýr Jónsdóttir, mezzósópran, Rannveig Fríða Bragadóttir, mezzósópran, Signý Sæmundsdóttir, sópran, Sverrir Guðjónsson kontratenór og Jónas Ingimundarson píanóleikari.

11. mars

Tónleikar Gerðubergs
Hallfríður Ólafsdóttir, flautuleikari og Guðríður St. Sigurðardóttir píanóleikari. Leikin verða verk eftir Anne Boyd, Johann Sebastian Bach, André Jolivet, Albert Roussel og Sergei Prokofiev.

12. mars

Tónsmiðjan - Klassískir tónleikar II

18. mars

Gerðu Berg ekki leiðan II. Hreyfimyndanámskeið (fyrsti dagur)
Framhaldsnámskeið í hreyfimyndagerð fyrir börn.

19. mars

Tónsmiðjan - Klassískir tónar II endurteknir

25. mars

Málþing um myndlist "List á almannafæri"
Til umræðu verður: Hlutverk listar á almannafæri, samskipti listamanna, almennings og yfirvalda.
Umsjónarmaður: Gunnar J. Árnason

26. mars - 23. apríl

Myndlistarsýning: Pétur Örn Friðriksson.

 

OKTÓBER

21. október

Ljóðatónleikar Gerðubergs
Rannveig Fríða Bragadóttir mezzósópran flytur íslensk sönglög ásamt píanóleikaranum Jónasi Ingimundarsyni

 

NÓVEMBER

18. nóvember

Ljóðatónleikar Gerðubergs
Þórunn Guðmundsdóttir söngkona kemur fram ásamt Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara. Þau flytja tónlist eftir Oskar Merikanto, Benjamin Britten og þórarinn Guðmundsson

 

DESEMBER

1. desember - 8. janúar

VerGangur
Sýning á verkum nokkurra heimsþekktra listamanna sem sýnt hafa hjá Helga Þorgils Friðjónssyni í Gallerí Gangi.

5. desember

Turak Théatre: Critures
Í Tjarnarbíói
Turak Théatre var stofnað fyrir 10 árum af Michel Laubu. Michel Laubu hefur unnið eftir fyrirmynd og undir áhrifum frá japanska leikforminu no og eins hefur hann verið undir áhrifum frá Grotowski. Hann notar hversdagslega hluti úr okkar daglega lífi, svo sem krana, vekjaraklukku, sigti og kaffikönnu. Þessir hlutir öðlast líf og segja söguna, ásamt leikurunum. Sýningarnar eru án orða og höfða jafnt til barna og fullorðinna.

9. desember

Turak Théatre: Critures
Í Tjarnarbíói - 2. sýning

10. desember

Turak Théatre: Critures
Í Tjarnarbíói - 3. sýning

2009