Viðburðadagatal 1994
JANÚAR
8. janúar - 13. febrúar
Mennesker mødes - mannleg samskipti
Sýning á verkum norrænna barna og unglinga sem skipulögð er af samtökum norrænna myndlistarkennara. Viðfangsefnin eru ást, fjölskylda, hefðir, leikur, vinátta, dauði, sorg og skemmtun. Barnakór Langholtskirkju syngur við opnunina.
15. janúar
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Michael Jón Clarke, baritón syngur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara. Flutt verður tónlist eftir Henry Purcell, Roger Quilter, Ralph Vaughan Williams, Óliver J. Kentish, Atla Heimi Sveinsson, Björgvin Guðmundsson, Franz Schubert og Johannes Brahms.
16. janúar - 13. febrúar
Karlímyndin í Effinu
Samsýning 12 karlkyns listamanna sem túlka karlímyndina hver á sinn hátt. Sýningin tengist aukinni umræðu um breytt kynhlutverk, hvernig upplifa karlmenn sig í nútímasamfélagi með breyttum kröfum, hver er karlímynd dagsins í dag, - sér þess einhver merki í myndlist nútímans?
Sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir.
23. janúar
Karlímyndin - Málþing í tengslum við samnefnda sýningu
Fyrirlesarar: Steinunn Sigurðardóttir, Guðmundur Andri Thorsson o.fl.
Umsjón: Harpa Björnsdóttir
FEBRÚAR
5. febrúar
Lærum og leikum - Grímubúningagerð
Fyrir börn og foreldra. Nemendur úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands munu aðtoða við gerð öskudagsbúninga.
12. febrúar
Lærum og leikum - Grímubúningagerð
Fyrir börn og foreldra. Nemendur úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands munu aðtoða við gerð öskudagsbúninga.
12. febrúar
Einleikstónleikar Gerðubergs
Kolbeinn Bjarnason flautuleikari kemur fram og leikur verk eftir Edgard Varese, Þorstein Hauksson, Hafliða Hallgrímsson, Brian Ferneythough, Atla Heimi Sveinsson og Harvey Sollberger.
16. febrúar
Öskudagsball
Hljómsveitin Fjörkarlar leikur fyrir dansi.
18. febrúar - 20. mars
Listsköpun fatlaðra - Myndlistarsýning
19. febrúar
Listsköpun fatlaðra - málþing
Stofnuð verða hagsmunasamtök sem hafa það á stefnuskrá sinni að styrkja fatlaða listamenn og auðvelda þeim að vinna að og koma verkum sínum á framfæri.
20. febrúar - 20. mars
Guðjón Ketilsson sýnir í Effinu
27. febrúar
Fræðslufundur Skógræktarfélags Reykjavíkur og Gerðubergs
Markmið fundarins er efling skógræktar í örfoka landi
MARS
5., 12., og 19. mars
Bonsai námskeið
Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um umpottun, klippingu, vírun Bonsaitrjáa.
12. mars
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Katrín Sigurðardóttir sópransöngkona kemur fram ásamt Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara. Þau flytja tónlist eftir m.a. Grieg, Sibelius og Jórunni Viðar og einnig verða flutt ensk og ítölsk lög.
20. mars
Málþing um myndlist
Árlegt málþing Gerðubergs fjallar að þessu sinni um „Ímyndir“, kvenímyndir, karlímyndir, listamannsímyndir - mótun við eigin ímyndir eða látum við mótast af hugmyndum annarra?
Umsjón annast myndlistarmennirnir Harpa Björnsdóttir og Anna Líndal.
26. mars - 24. apríl
Ósk Vilhjálmsdóttir sýnir í Effinu
APRÍL
30. apríl
Einleikstónleikar Gerðubergs
Gunnar Kvaran sellóleikari kemur fram ásamt Gísla Magnússyni píanóleikara. Þeir flytja tónlist eftir Henry Eccles, Hafliða Hallgrímsson, Ludwig van Beethoven, Gabriel Fauré, William Henry Squire og Pablo Casals.
MAÍ
14. maí
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Björk Jónsdóttir sópran kemur fram ásamt Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara. Þau flytja tónlist eftir Franz Schubert, Robert Schumann, Maurice Ravel, Sergei Rachmaninov, Ingunni Bjarnadóttur og Arnold Schönberg.
ÁGÚST
18. ágúst
Tónleikar í Borgarleikhúsinu. Tónleikar til heiðurs íslenska einsöngslaginu.
Fram koma margir úr hópi okkar þekktutstu söngvara og flytja íslenskar einsöngsperlur.
SEPTEMBER
4. september - 2. október
Myndlistarsýning: Inga Svala Þórsdóttir
17. september
Einleikstónleikar Gerðubergs
Guðni Franzson klarinlettuleikari kemur fram ásamt Gerrit Schuil píanóleikara og hljómsveitarstjóra. Fluttar verða tvær sónötur etir Brahms og tvö verk eftir Schumann.
16.-18. september
Skólaskákmót norrænna barna
22. - 23. september
Ráðstefna um jafnréttismál
OKTÓBER
2. október - 1. desember
Íslenska einsöngslagið - Yfirlitssýning á 50 ára lýðveldisafmælinu
Á sýningunni verða ljósmyndir af tónskáldum og flytjendum íslenskra einsöngslaga, skýringartextar, nótnahandrit, söngskrár og aðrir munir sem tengjast flutningi einsöngslaga á Íslandi í hundrað ár.
Á opnunardaginn mun Jón Þórarinsson tónskáld flytja erindi. Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópran flytur íslensk sönglög og tónskáld munu draga ljóð úr hatti og semja lög sem frumflutt verða 19. nóvember.
3. - 4. október
Námskeið í túlkun sönglaga (masterklass)
Kristinn Sigmundsson baritón.
7. - 8. október
Sálarrannsóknarfélagið
Opinn fundur.
9. október
Íslenska einsöngslagið/Úr sönglagasafninu
Trausti Jónsson veðurfræðingur og Baldur Símonarson lífefnafræðingur flytja erindi. Hrafnhildur Guðmundsdóttir, mezzósópran, og Guðríður St. Sigurðardóttir, píanóleikari, flytja íslensk sönglög.
9. október - 6. nóvember
Myndlistarsýning: Ólöf Nordal
16. október
Íslenska einsöngslagið / Brageyra og tóneyra
Reynir Axelsson stærðfræðingur heldur erindi. Signý Sæmundsdóttir, sópran, og Þóra Fríða Sæmundsdóttir, píanóleikari, flytja íslensk sönglög.
23. október
Íslenska einsöngslagið / Heyrt í Flóanum
Helgi Sæmundsson, rithöfundur, flytur erindi. Bergþór Pálsson, baritón, og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari, flytja íslensk sönglög.
30. október
Íslenska einsöngslagið / Ljóð við lög
Þorsteinn Gylfason heimspekingur flytur erindi. Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran, og Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari flytja íslensk sönglög.
NÓVEMBER
5. nóvember
Einsöngstónleikar Gerðubergs
Krystyna Cortes píanóleikari. Hún mun flytja tónlist eftir J.S. Bach, F. Mendelssohn og Fr. Chopin.
6. nóvember
Íslenska einsöngslagið / Lög við ljóð
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld flytur erindi. Marta G. Halldórsdóttir, sópran, og Örn Magnússon píanóleikari flytja íslensk sönglög.
13. nóvember - 11. desember
Myndlistarsýning: Erla Þórarinsdóttir og Andrew MacKenzie
19. nóvember
Íslenska einsöngslagið / Horft um öxl. Lokadagskrá.
Halldór Hansen læknir heldur erindi. Frumflutningur laga við ljóð sem tónskáld drógu úr hatti á opnun yfirlitssýningarinnar í Gerðubergi 2. október. Pallborðsumræður: Guðmunda Elíasdóttir, Guðmundur Jónsson, Kristinn Hallsson, Magnús Jónsson, Þorsteinn Hannesson, Þuríður Pálsdóttir o.fl.