Viðburðadagatal 1993
JANÚAR
18. janúar - 16. febrúar
Myndlistarsýning: Haraldur Jónsson
21. janúar
Einsöngstónleikar. Ása Lísbet Björgvinsdóttir mezzósópran
Ása Lísbet Björgvinsdóttir syngur við undirleik Vilhelmínu Ólafsdóttur píanóleikara. Þær flytja verk eftir Sigvalda Kaldalóns, Árna Björnsson, Jórunni Viðar, Brahms, Sibelius, Grieg, Wagner og Verdi
FEBRÚAR
3. febrúar
Slagverkstónleikar
Martin van der Falk, Guðmundur Steingrímsson, Sigtryggur Baldursson og Steingrímur Guðmundsson flytja frumsamda slagverkstónlist
20. febrúar
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Kolbeinn J. Ketilsson tenór, Unnur A. Wilhelmsen sópran og Jónas Ingimundarson, píanó, flytja ljóðasöngva eftir H. Purcell, J. Haydn, R. Schumann, H. Wolf, A. Dvorak og Alice Mary Smith
22. febrúar
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Tónleikar Kolbeins J. Ketilssonar, Unnar A. Wilhelmsen og Jónasar Ingimundarsonar endurteknir
22. febrúar - 23. mars
Myndlistarsýning: Ásta Ólafsdóttir
24. febrúar
Öskudagur - Grímudansleikur fyrir börn
Hljómsveitin Fjörkarlar leikur
MARS
4. mars
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Hátíðartónleikar vegna 10 ára afmælis Gerðubergs. Í tilefni þess verður gefinn út geisladiskurinn Á ljóðatónleikum Gerðubergs III. Flytjendur: Anna Júlíana Sveinsdóttir, Bergþór Pálsson, Erna Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Signý Sæmundsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Sverrir Guðjónsson, Viðar Gunnarsson og Jónas Ingimundarson.
6. mars - 5. apríl
MEDÚSA
Sýning á verkum Medúsuhópsins. Medúsuhópurinn upphófst í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti í byrjun áttunda áratugarins. Félagar í hópnum störfuðu undir merki súrrealismans og lögðu gjörva hönd á ritlist, tónlist og myndlist og stóðu fyrir ýmsum uppákomum og gjörningum. Sýningunni er ætlað að gefa mynd af hópnum eins og hann var þegar hann starfaði en einnig að sýna við hvað félagarnir eru að fás við núna.
15. mars
DRAMATISK CROQUIS
Sýning danska leikhópsins Boxiganga Performance Theater.
Leikhópurinn var stofnaður 1987 og aðsetur hans er í Árósum en hópurinn hefur sýnt víða um Danmörku. Boxiganga er leikhús sem byggir á samruna hinna ýmsu listforma: myndlistar, dans, tónlistar og leiklistar.
16. mars
DRAMATISK CROQUIS
Sýning danska leikhópsins Boxiganga Performance Theater.
17. mars
DRAMATISK CROQUIS
Sýning danska leikhópsins Boxiganga Performance Theater.
20. mars
Lykilöfl í íslensku myndlistarlífi - Málþing um myndlist
Rætt um stöðu íslenskrar myndlistar
Umsjón: Hannes Lárusson
Gefið verður út rit sem inniheldur framsöguerindin og almennar umræður á málþinginu.
29. mars
Myndlistarsýning: Margrét Magnúsdóttir
29. mars
MEDÚSA
Leiksmiðjan LAB leikur leikritið "Heima er best", leikdagskrá byggða á verkum Medúsuhópsins. 3. sýning
APRÍL
1. apríl
MEDÚSA
"Heima er best", 4. sýning
3. apríl
MEDÚSA
Súrrealískt leikjanámskeið í umsjón Medúsuhópsins, fyrir 15 ára og eldri
19. apríl
70 ára afmæli Borgarbókasafns Reykjavíkur
Opnuð sýning á ljósmyndum úr starfi safnsins í Gerðubergi
22. og 24. apríl
Barnaafmæli Gerðubergs
22. apríl
Sumardagurinn fyrsti - Barnaskemmtun
Möguleikhúsið, Sögusvuntan, Nafnlausi leikhópurinn og fleiri leikhópar koma fram
24. apríl
Tónlistardagur barnanna
Dagskrá í samvinnu Gerðubergs og tónlistarskólanna á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
30. apríl - 8. maí
Myndlistarsýning: Vorsýning listasviðs Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
MAÍ
15. maí
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Rannveig Bragadóttir Postl mezzósópran og Jónas Ingimundarson flytja ljóðasöngva eftir R. Schuman, E. Grieg, Atla Heimi Sveinsson, F. Poulenc og R. Strauss.
15. maí - 29. maí
Myndlistarsýning: Austurríski myndlistarmaðurinn Arnold Postl sýnir
17. maí
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Tónleikar Rannveigar Bragadóttur og Jónasar Ingimundarsonar endurteknir.
JÚNÍ
1. -19. júní
Gagn og gaman, 1. námskeið
5. júní
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran og Jónas Ingimundarson, píanó, flytja sönglög eftir S. Rachmaninoff, F. Poulenc, F. Schubert, T. Respigghi, A. Verretti og G. Rossini.
7. júní
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Tónleikar Sigrúnar Hjálmtýsdóttur og Jónasar Ingimundarsonar endurteknir.
26. júní
Útitónleikar með KK-bandinu
Í tilefni af því að Gerðuberg verður 10 ára í ár og Borgarbókasafn Reykjavíkur verður 70 ára bjóða Gerðuberg og Borgarbókasafnið í Gerðubergi upp á tónleika með KK-bandinu. KK-bandið skipa þeir Kristján Kristjánsson, Þorleifur Guðjónsson og Kormákur Geirharðsson.
28. júní - 17. júlí
Gagn og gaman. 2. námskeið
JÚLÍ
19. júlí - 30. júlí
Heimspekinámskeið fyrir börn fædd 1984-1986
„Við æfum okkur í að hugsa um leið og við tölum saman og föndrum. Við búum líka til brúður og setjum upp brúðusýningar.“
Kennarar: Sigurður Björnsson og Hreinn Pálsson
ÁGÚST
9. - 28. ágúst
Gagn og gaman, teiknimyndanámskeið
Á námskeiðinu eru gerðar tilraunir með 16mm filmu. Samdar eru sögur og ljóð, unnið með leikræna tjáningu og tónlistarsmíð. Stefnt er að mynd þar sem þessi atriði fá öll að njóta sín.
18. ágúst - 11. september
Útisýning á höggmyndum (skúlptúrum) á torginu við Gerðuberg.
Öllum myndlistarmönnum er heimil þátttaka en þriggja manna nefnd velur verkin. Í nefndinni sitja fulltrúar skipaðir af Myndhöggvarafélagi Íslands, Kjarvalstöðum og Gerðubergi. Frestur til að skila inn hugmyndum og teikningum að verkum er til 1. júní.
SEPTEMBER
11. september
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran og Jónas Ingimundarson, píanó, flytja sönglög eftir S. Rachmaninoff, F. Poulenc, F. Schubert, T. Respigghi, A. Verretti og G. Rossini og íslensk lög.
18. september
„Leikum og lærum“ - Námskeið fyrir börn og fullorðna
Námskeið í plastmódelsmíði
Leiðbeinandi: Árni Guðmundsson
Kennt er á laugardögum kl. 10:15-13:00
19. september
Myndbandasýning. Opnun sýningarinnar "Samtal" í Effinu.
Þátttakendur: Ásta Ólafsdóttir, Haraldur Jónsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Kristinn E. Hrafnsson, Rúrí og Þorvaldur Þorsteinsson.
OKTÓBER
1.-3. október
Dulrænir dagar í Gerðubergi. Sálarrannsóknarfélag Íslands gengst fyrir ráðstefnu um dulræn málefni.
Fyrirlesarar verða Þórunn Maggý Guðmundsdóttir miðill, Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur, dr. Loftur Reimar Gissuarson sálfræðingur, Anna María Hilmarsdóttir ritari, Erla Stefánsdóttir, Ingibjörg Þengilsdóttir, Sigurður Haukur Guðjónsson og fleiri. Stjórnandi verður Konráð Adolphsson forseti Sálarrannsóknarfélagsins.
16. október
„Leikum og lærum“ - Námskeið fyrir börn og fullorðna
Námskeið í fluguhnýtingum
Leiðbeinandi: Sigurður Pálsson
Kennt er á laugardögum kl. 10:15-13:00
16. október
Einleikstónleikar Gerðubergs
Arnaldur Arnarson gítar, leikur verk eftir M. Giuliani, Fernando Sor, F. Mompou, D. Padros, Manuel Maria Ponce, J. Gomez Crespo, J. Rodrigo og F. Moreno - Torroba.
17. október - 14. nóvember
Myndlistarsýning: Finna B. Steinsson sýnir í Effinu
23. - 31. október
Skákmót
Taflfélagið Hellir heldur alþjóðlegt skákmót.
NÓVEMBER
7. nóvember
"Að rækta garðinn sinn"
Fyrsti kynningarfundur Skógræktarfélags Reykjavíkur og Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs.
13. nóvember
„Leikum og lærum“ - Námskeið fyrir börn og fullorðna
Námskeið í skartgripagerð. Unnin eru hálsmen, nælur, eyrnalokkar o.fl.
Leiðbeinandi: Anna Flosadóttir
14. nóvember
Síðdegistónleikar á sunnudegi
Dagskrá í umsjón Jónasar Ingimundarsonar tónlistarráðunauts Gerðubergs.
21. nóvember - 19. desember
Myndlistarsýning: Ásmundur Ásmundsson sýnir í Effinu
27. nóvember
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Garðar Cortes tenór og Jónas Ingimundarson píanó, flytja íslensk og erlend lög.
DESEMBER
4. desember
Barnadagskrá
Brúðuleikhús með Sögusvuntunni og dansleikur með Fjörkörlum.