Gerðuberg

 

Óreiðan - söguheimur Karitasar


31. október 2009 – 3. janúar 2010
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir

ÓreiðanÓreiðan - Í tilefni af Ritþingi Kristínar Marju Baldursdóttur er sett upp sýning úr söguheimi listakonunnar Karitasar í sýningarrými á efri hæð Gerðubergs. Sýningin ber titilinn Óreiðan og sýningarstjóri er Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, myndlistarkona, leikmynda- og búningahönnuður.

Þórunn Elísbet myndgerir sögusvið og tilfinningar sem vakna með lesendum bóka Kristínar Marju um Karitas (Karitas án titils og Óreiða á striga). Þetta gerir hún með því að stilla upp hlutum, litum og tilvitnunum. Þórunn Elísabet hafði sjálf sterka tengingu við bækurnar áður en hún tókst á við verkið, enda var hún í sveit í Öræfum sem barn.

Sögusviðið er að mestu úr fyrri bókinni, Karitas án titils. Stillt er upp hlutum og litum, svarti liturinn, hvíti liturinn, blái liturinn. Komið er við á Borgarfirði Eystri,Óreiðan Öræfasveit og París. Hvannadalshnúkur skipar ákveðinn vendipunkt í sögu Karitasar, gangan á tindinn markar ákveðna upprisu hennar sem persónu og listamanns. Sá þáttur sögunnar fær veglegan sess í mikilli stækkun gamalla ljósmynda frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, önnur af hnúknum sjálfum og hin af víðáttunni sem þaðan sést. Dvölin í París var Karitas að sumu leyti erfið en þó nauðsynleg. Hún þurfti að rétta sig við gagnvart fortíðinni og þora að lifa sig inn í framtíðina, Karitas var komin á draumastaðinn en ennþá með farangur. Hún uppgötvar að frelsið er innra með henni en ekki skapað af ytri aðstæðum.

Tilvitnanirnar sem prýða veggi sýningarrýmisins eru úr seinni bókinni um Karitas, Óreiða á striga. Við val á texta leitast Þórunn Elísabet við að ná í það sem skipti Karitas og upplifun hennar verulega miklu máli. Fremur það sem hún hugsaði eða tengdist henni á sterkan hátt en það sem sagt var við hana. Eitthvað sem hún var að leita að, gera og kljást við.

ÓreiðanUm sýninguna segir Þórunn Elísabet:
„Það var ekki erfitt að ferðast og láta berast langt, langt inn í heim Karitasar. Sagan dró mig svo langt að ég varð líka Karitas; var og horfði, lifði og þorði. Óreiðan er bæði lamandi og hvetjandi, út frá því geng ég.“

Þórunn Elísabet Sveinsdóttir (f. 1952) útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands í frjálsri myndlist árið 1982. Fljótlega eftir útskrift hóf hún störf tengd leikhúsum þar sem hún hefur getið sér gott orð fyrir búningahönnun og sviðsmyndir í bráðum þrjá áratugi. Við vinnu sína hefur hún jafnan farið þá leið að endurvinna gömul efni og búninga. Auk fjölmargra verkefna fyrir leikhús og kvikmyndir hefur Þórunn Elísabet unnið að myndlist sinni, haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Gerðuberg hélt Þórunni Elísabetu Sjónþing árið 2001 og á sama tíma sýndi hún nýjustu verk sín. Hún tók einnig þátt í safnarasýningu Gerðubergs árið 2005 þar sem hún sýndi fágæt útsaumsverk og útsaumteikningar. Nú stendur yfir sýningin Evudætur í Listasafni Akureyrar (24.10.-13.12.2009) þar sem Þórunn sýnir verk sín ásamt tveimur öðrum listakonum.

Gerðuberg færir Minjasafni Reykjavíkur, Árbæjarsafni, sérstakar þakkir fyrir lán á sýningarmunum.

Nánari upplýsingar um Kristínu Marju Baldursdóttur má nálgast hér.

 

2009