Gerðuberg

 

FARALDUR


eftir Jónínu Leósdóttur í flutningi Útvarpsleikhússins
sunnudaginn 22. nóvember kl. 14 á Rás 1
 
Um verkið:
Jana ákveður að einangra sig og fjölskyldu sína þegar alheimsfaraldur er í uppsiglingu. Bílskúrinn er fullur af mat. Þau þurfa bara að bíða þess að plágan gangi yfir. Hörmungarnar utan dyra láta fjölskylduna hins vegar ekki ósnortna, spennan á heimilinu magnast og ófyrirséð atvik setja skipulag Jönu úr skorðum. Einn úr hópnum þarf lífsnauðsynlega að fara út – en fær hann að koma inn aftur?
 
Með hlutverk Jönu fer Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Friðrik mann hennar leikur Valdimar Flygenring.
Börn þeirra eru leikin af Maríönnu Clöru Lúthersdóttur og Davíð Guðbrandssyni.
Móður Jönu leikur Anna Kristín Arngrímsdóttir.
 
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir
Hljóðvinnslu annaðist Einar Sigurðsson
 
Jónína Leósdóttir hefur skrifað fyrir ýmis leikhús og má nefna:

Símastefnumót (Útvarpsleikhúsið - RÚV 1997)
Stundarbrjálæði (Útvarpsleikhúsið - RÚV 2002)
Hér er kominn maður ... (Útvarpsleikhúsið - RÚV, 2006),
 
Fyrsta nóttin (Sunnudagsleikhús RÚV/sjónvarp 2000)
Það heilaga (Sunnudagsleikhús RÚV/sjónvarp 2000)
Helgarferð (Sunnudagsleikhús RÚV/sjónvarp 2000)
Koddahjal (Sunnudagsleikhús RÚV/sjónvarp 2000)
Stóra Stundin (RÚV/sjónvarp 2002)
Frátekið borð. Einþáttungur (Höfundasmiðja L.R. 1996. Sýnt víða um land á árunum 1996-2000, m.a. á Menningarnótt Reykjavíkurborgar.)
Að vera eða vera ekki. Einþáttungur (2. verðlaun í Samkeppni Sjálfsbjargar og Sambands sveitarfélaga í desember1995 -- leiklesinn af leikurum LA á Akureyrir á degi Fatlaðra árið 1996)
Leyndarmál. (Leikfélag Fjölbrautarskólans í Breiðholti 1997, Leikfélag Fjölbrautarskólans á Vestfjörðum 1997, Leikfélag Fjölbrautarskóla Suðurlands 1998)
Lófalestur. Einþáttungur (Listaklúbbur Leikhúskjallarans 1998. Sýnt víða um land á árunum 1998-2000.), 
  
Með kveðju / Regards
Viðar Eggertsson
stjórnandi Útvarpsleikhússins / Head of Radio Drama
sími/tel: +354 5153570
farsími/ mobile: + 354 898 8661      
Útvarpsleikhúsið

 

2009