Kristinn Reynholt Alexandersson
Kristinn Reynholt Alexandersson er fæddur í Reykjavík 18. janúar 1939. Hann ólst upp í föðurhúsum og leikvangurinn var aðallega Austurvöllur og Dómkirkjan þar sem afi hans var kirkjuvörður. Mjög snemma bar á listfengi Kristins og náði hann ungur tökum á málaralistinni. Ekki átti pensillinn þó hug hans allan, því hann var kominn í hljómsveit sem unglingur og þótti afbragðsgóður trommuleikari, spilaði m.a. til fjölda ára með hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar frá Selfossi betur þekkt sem „Steini spil“. Kristinn er sjálfmenntaður listmálari utan þess að hafa sótt námskeið hjá Myndlistaskóla Íslands og Tómstundaskólanum. Hann hefur aðallega fengist við landslagsmyndir og átthagamyndir. Þetta er fyrsta opinbera sýningin sem Kristinn tekur þátt í.
2009