Þetta vil ég sjá!

Karl Ágúst, Pálmi, Randver, Örn og Siggi velja sína uppáhalds listamenn á sýningarröðina Þetta vil ég sjá! Á sýningunni eru verk eftir nítján núlifandi listamenn og er þar að finna bæði gömul verk og ný. Einnig eru nokkur verk úr eigu þeirra sjálfra og í fyrsta sinn munu þeir Siggi og Örn sýna verk sem þeir sjálfir hafa málað. Fjölbreytnin er mikil og má t.d. finna á sýningunni, skúlptúra, ljósmyndir, lágmyndir og margt fleira.
Listamennirnir sem Spaugstofumenn velja eru eftirtaldir:
Tumi Magnússon, Magnús Pálsson, Pétur Magnússon , Birgir Andrésson, Lína Rut Wilberg, Jón Axel, Egill Eðvarðsson, Guðmundur Másson, Bragi Ásgeirsson, Daði Guðbjörnsson, Tolli, Eiríkur Smith, Kristján Davíðsson, Sigurbjörn Jónsson, Gréta Ósk Sigurðardóttir, Tryggvi Ólafsson, Karolína Lárusdóttir, Pétur Gautur, Sigrún Olsen.
2010