Eðvaldína Kristjánsdóttir
Eðvaldína er fædd á Hríshóli í Barðastrandasýslu 8. ágúst 1913 og er því rúmlega níræð. Hún bjó alla sína búskapartíð í Dalasýslu, fyrst á Hólum í Hvammssveit og svo á Glerárskógum í 46 ár. Árið 1985 fluttist Eðvaldína til Reykjavíkur og kynntist Félagsstarfinu í Gerðubergi. Þá loks gat hún farið að einbeita sér að listsköpun en hún hefur ávallt verið mikil handverkskona en lítill tími gafst til þeirra hluta á búskaparárum hennar.
Á sýningu Eðvaldínu eru um 25 myndir eftir hana. Fyrstu myndina málaði hún 1997 og naut þá tilsagnar Guðfinnu Hjálmarsdóttur en leiðbeinandi hennar seinni árin hefur verið Bryndís Magnúsdóttir. Einnig er handverk til sýnis en Eðvaldína hefur verið virk í útskurði, postulínsmálun og annarri handavinnu.
2010