Það var barn í salnum - Ráðstefna um börn og leikhús
27. mars 2004
Yfirskrift hinnar árlegu barnabókaráðstefnu í Gerðubergi er að þessu sinni „Börn og leikhús“ en fyrirlesarar eru Silja Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræðingur, Harpa Arnardóttir, leikkona, og María Reyndal, leikstjóri.
Auk fyrirlestra verður frumflutt örleikrit úr leikritasamkeppni sem haldin var meðal SÍUNGfélaga í tilefni af ráðstefnunni.
Stjórnandi ráðstefnunnar er Jón Hjartarsson.
Dagskráin hefst kl. 10:15 og stendur til 14:00 með hádegishléi, en í lok ráðstefnunnar eru almennar umræður um fyrirlestrana. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Að ráðstefnunni standa: IBBÝ, SÍUNG, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Félag
skólasafnskennara, Borgarbókasafnið, Upplýsing og Menningarmiðstöðin Gerðuberg.
______________________
Dagskrá
Silja Aðalsteinsdóttir: Snuðra og Tuðra hitta Gleði-Glaum.
Örleikrit: Frumflutt örleikrit úr leikritasamkeppni sem haldin var meðal SÍUNGfélaga í tilefni af ráðstefnunni. Höfundi leikritsins veitt viðurkenning. Leikendur: Guðmundur Ólafsson og Sigrún Edda Björnsdóttir.
- - hádegishlé - -
Harpa Arnardóttir: Veruleiki.
María Reyndal: Barnalegt leikhús?
Almennar umræður.
2010