Gerðuberg

 

Arnaldur Indriðason á Ritþingi


17. apríl 2004

 

Arnaldur IndriðasonArnaldur Indriðason situr fyrir svörum á Ritþingi í Gerðubergi. Stjórnandi er Örnólfur Thorsson íslenskufræðingur. Spyrlar eru Katrín Jakobsdóttir íslenskufræðingur og Kristín Árnadóttir framhaldsskólakennari. Oddgeir Eysteinsson les brot úr verkum Arnaldar, m.a. úr óútkominni bók höfundarins sem ber vinnuheitið Kleifarvatn.

Arnaldur Indriðason er fæddur 1961 og hefur skrifað sjö glæpasögur. Sú fyrsta, Synir duftsins, kom út 1997, Dauðarósir 1998, Napóleonsskjölin 1999, árið 2000 Mýrin, Grafarþögn 2001 og Röddin 2002. Nú síðast, 2003, kom út bókin Bettý.

Blueeyes Productions hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á Mýrinni.

Arnaldur hefur í tvígang hlotið hin eftirsóttu verðlaun Glerlykilinn. Árið 2002 vann hann verðlaunin fyrir bókina Mýrin og 2003 sömu verðlaun fyrir Grafarþögn.

Arnaldur Indriðason hefur undanfarin ár verið okkar ástsælasti höfundur og hafa bækur hans nú þegar verið seldar til 14 landa og hafa engar bækur eftir íslenskan höfund selst eins vel á erlendri grund og bækur hans.

2010