Sýningin Glæpaverk
17. apríl - 9. maí 2004
Skyggnst inn í glæpaveröld Arnaldar Indriðasonar á sýningunni Glæpaverk í samstarfi við Lögregluna í Reykjavík. Arnaldur Indriðason hefur undafarin ár verið okkar ástsælasti höfundur og tekur hann þátt í Ritþingi Gerðubergs 17. apríl.
Bækur Arnaldar hafa nú þegar verið seldar til 14 landa og hafa engar bækur eftir íslenskan höfund selst eins vel á erlendri grundu og bækur hans. Sjá meðfylgjandi metsölulista í Þýskalandi þar sem tvær af bókum Arnaldar eru á lista. www.buchreport.de
Á sýningunni er að finna bækur Arnaldar sem og yfirlit yfir ævi hans og störf. Bækur hans öðlast jafnframt líf með ljósmyndum og munum sem koma fyrir í bókunum. Einnig er að finna umfjöllun um bækur Arnaldar, verðlaun sem hann hefur hlotið og hægt er að hlusta á sögurnar.
Lögreglan í Reykjavík tekur virkan þátt í sýningunni. Stillt verður upp morðvettvanginum í bókinni Mýrinni og farið í gegnum starfsaðferðir tæknideildar Lögreglunnar eins og um raunverulegan viðburð væri að ræða. Þar verður m.a. sýnt hvernig finna á fingraför, taka á sýni og allt sem fylgir rannsókn á morðmáli.
Hópar geta skráð sig í í leiðsögn í Gerðubergi í síma 5757700 eða gerduberg@gerduberg.is. Hægt er að ská sig kl. 14:00 eða 15:00 dagana 3, 4, 5, 6, 7, og 9 maí.
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður í síma 5757707eða holmfridur@gerduberg.is
2010