Allar heimsins konur
Á sýningunni Allar heimsins konur eru sýnd verk kvenna frá 176 löndum. Þemað er „Að vera kona, hvað þýðir það“. Sýningin er búin að fara um allan heim og var nú síðast á Listasafninu á Akureyri.
Listamaðurinn Claudia DeMonte er umsjónarmaður sýningarinnar og býr hún í New York. Hún hefur sjálf haldið yfir 60 einkasýningar og tekið fyrir málefni kvenna á „gamansaman” hátt. Hún segir að áhugavert sé að skoða hina ólíku menningarlegu þætti sem speglast í verkum kvennanna 176.
Sýningin hefur tvenns konar tilgang, fagurfræðilegan og fræðandi. Sýningin kallar fram spurningar um líf kvenna um allan heim og fylgir sýningunni þykk sýningarskrá með ljósmyndum af öllum verkunum, tölfræði um bakgrunn listakvennanna og útskýringum á félagslegum þáttum sem hafa áhrif á líf þeirra í þessum ólíku löndum. Þar á meðal eru ýmis málefni varðandi fæðingar og umskurði. Verkin á sýningunni gefa okkur innsýn í líf þreyttra húsmæðra og pirraðra dætra. Önnur verk eru með mun alvarlegri tón eins og myndin frá Tælandi sem sýnir skó bundinn við hlekki.
Myndunum var safnað saman á þremur og hálfu ári og átti þemað að tengjast málefnum dagsins í dag. Claudia DeMonte segir að hún hafi ekki getað gert sér í hugarlund þá gífurlegu vinnu og þrautseigju sem þetta verkefni krafðist. Einnig segir hún að viðbrögð ráðamanna hafi komið sér á óvart og að víða hafi hún komið að lokuðum dyrum. En hún ákvað að gefast ekki upp. Sumir þátttakendanna eru þjóðþekktir listamenn á meðan aðrir hafa aðra atvinnu eins og t.d. listakonan frá Zambiu, en hún er kennari og gerir mynd af konu með hnött á höfðinu. Og kannski er það besta lýsingin á öllum konum - þær bera allar heimsins byrðar á herðum sér, en það sem gerir þeim það kleift er að þær hafa stórt hjarta.

Sýningin er sérstaklega vel fallin til safnfræðslu fyrir skólafólk á öllum aldri, út frá ótal sjónarhornum, fyrir utan að bjóða upp á staðgóða kennsla eða upprifjun í landafræði. Hvert verk er ekki aðeins merkt höfundi sínum, heldur er þar einnig að finna skoðanir hans í flestum tilvikum og upplýsingar um viðkomandi land, ásamt heimsmynd og landakorti en á sýningunni er að finna land frá næstum hverju einasta land í heiminum sem hlotið hefur viðurkenningu sem sjálfstætt ríki
Sýningin mun svo halda til Grikklands að lokinni Íslands dvöl á Ólympíuleikana 2004.
Sýningarstjóri er Harpa Björnsdóttir
Hægt er að fá meiri upplýsingar á www.imow.org, www.listasafn.akureyri.is
Á opnunardegi sýningarinnar 16. maí verður KARNIVAL-stemming í Gerðubergi í samstarfi við Kramhúsið. Nemendur og kennarar munu sýna dansa frá Balkansskaga, magadans, flamenco, Orville og afródansarar og fleira. Margrét Pálmadóttir kemur einnig fram með kór sínum sem syngur gospeltónlist, www.kramhusid.is
2010