Gerðuberg

 

Sjónþing: Reynir Vilhjálmsson


25. september 2004

 

Reynir VilhjálmssonÞann 7. ágúst 2004 varð Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt 70 ára. Reynir er einn af frumkvöðlum í faginu og hefur hann rutt brautina fyrir rúmlega 50 landslagsarkitekta á Íslandi með faglegum vinnubrögðum, ótrúlegum afköstum og brennandi áhuga á starfi sínu allt fram á þennan dag. Á síðasta ári fagnaði Reynir 40 ára samfelldu starfi á Íslandi, en áður hafði hann starfað í 2 ár í Danmörku eftir útskrift frá Listaakademíunni í Kaupmannahöfn.

Á Sjónþingi Gerðubergs mun Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt ræða um uppvaxtarárin, skólagöngu sína í Danmörku, starfsferilinn, fortíð, framtíð og allt þar á milli.

Stjórnandi: Stefán Örn Stefánsson arkitekt.
Spyrlar: Pétur Ármannsson arkitekt og Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt.

Að Sjónþingi loknu opnar yfirlitssýning í Gerðubergi á verkum Reynis sem spannar sl. 40 ár. Sýndar verða teikningar og ljósmyndir af verkum Reynis sem Guðmundur Ingólfsson tók úr lofti og láði. Sýningin stendur til 14. nóvember.

Sjónþingið er í samstarfi við Landslagsarkitektastofuna Landslag ehf. http://www.landslag.is/ og er sjónþingið haldið fyrir tilstuðlan Félags íslenskra landslagsarkitekta http://www.fila.is/

 

Starfsferill Reynis Vilhjálmssonar:

Reynir Vilhjálmsson hóf nám í Garðyrkjuskóla Ríkisins að Reykjum í garðyrkjufræðum og útskrifaðist þaðan 1953. Þar lá leiðin í Det Kg. Danske Haveselskabs Anlægsgartnerskole og síðan í Kunstakademiets Arkitektskole í Kaupmannahöfn og lauk Reynir námi árið 1961. Árið 1956 vann Reynir hjá Agnete Musfelt og Erik Mygind landslagsarkitektum en árið 1963 opnaði hann sína eigin stofu, Teiknistofa Reynis Vilhjálmssonar. Þráinn Hauksson kom inn í reksturinn með Reyni árið 1989 og árið 1999 var Landslag ehf sett á laggirnar með innkomu Dagnýjar Bjarnadóttur og Finns Kristinssonar. Reynir var einn af 5 stofnfélögum Félags íslenskra landslagsarkitekta árið 1978 og var hann jafmframt fyrsti formaður félagsins.

 

Reynir Vilhjálmsson - forsíðumynd

Dæmi um hönnunarverk:

Starfað að skipulagsmálum: Í Reykjavík síðan 1963 m.a. einn af hönnuðum Árbæjarhverfis, Seláshverfis, Neðra Breiðholts og fleiri svæða og hverfa í Reykjavík, Húsavík, Sauðárkróki og víðar.

Skipulag orlofshúsabyggða: B.S.R.B. í Munaðarnesi, Stóruskógum og Eiðum, Starfsmannafélög SÍS að Hreðavatni,
Iðju í Svignaskaði, Landsbanka Íslands við Álftavatn, fyrir símamenn við Apavatn.

Stærri svæði: Heildarskipulag Elliðaársvæðis, Laugardals og þjóðgarðsins á Þingvöllum.

Skrúðgarðar: Miklatún, Húsdýragarður sem og skrúðgarðar á Húsavík, í Borgarnesi, Hafnarfirði, Hveragerði og víðar.

Stofnanalóðir: Reykjalundur, Mjólkursamsalan í Reykjavík, Rafmagnsveita Reykjvaíkur, Hitaveita Reykjavíkur að Nesjavöllum, Framkvæmdasjóður Íslands, Þjóðarbókhlaða, Útvarpshús, Listasafn Íslands, Droplaugarstaðir, Borgarleikhús, fjöldi skóla- og leikskólasvæða um allt land.

Íþrótta- og útivistarsvæði: í Árbæjarhverfi og víða um land.

Umferðarmannvirki: m.a. mislæg gatnamót v/ Höfðabakka, Sundabraut, Skeiðarvogur/Miklabraut.

Varnarmannvirki: Snjóflóðavarnir á Siglufirði.

 

Reynir hefur unnið til fjölmargra viðurkenninga í ýmsum hugmyndasamkeppnum, ýmist einn eða í samvinnu við aðra.

2003:  Evrópsku Rosa Barba verðlaunin í landslagsarkitektúr - Sérstök viðurkenning fyrir hönnun 1.áfanga snjóflóðavarna á
Siglufirði. Valið var úr rúmlega 500 verkum.

1996:  1.verðlaun vegna Rauða Kross Íslands (ráðgjafi fyrir Glámu Kím arkitekta).

1995:  1. verðlaun vegna Engjaskóla (byggður á lóð Borgaskóla, ráðgjafi fyrir Glámu Kím arkitekta). Einn af 6 verðlaunahöfum í samkeppni um skipulag Arnarhóls.

1985:  1. verðlaun vegna Víðistaðasvæðis í Hafnarfirði í samstarfi við fleiri.

1972:  3. verðlaun vegna heildarskipulags Þingvallasvæðisins í samstarfi við fleiri.

1970:  3. verðlaun vegna miðbæjar Akureyrar í samstarfi við Stefán Jónsson.

1962:  2. verðlaun vegna Íþróttasvæðis í Nörresundby, Danmörku í samstarfi við Sven Toft Jacobsen og Andreas Bruun.

1959:  3. verðlaun vegna Lækjarins í Hafnarfirði í samstarfi við Jörund Pálsson.

1958:  3. verðlaun vegna Íþróttasvæðis í Herlev, Danmörku í samstarfi við fleiri. 3. verðlaun vegna Klambratúns á árunum 1957.


 

2010