Sönglög Sigvalda Kaldalóns
Kominn er út hljómdiskurinn Svanasöngur á heiði með sönglögum tónskáldsins Sigvalda Kaldalóns. Á disknum er að finna margar af þekktustu perlum tónskáldsins sem og lög sem sjaldan eða aldrei hafa verið flutt áður. Jónas Ingimundarson píanóleikari hafði umsjón með útgáfunni, vali á flytjendum og lögum.
Flytjendur eru: Ólafur Kjartan Sigurðarson, barítón, Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran, Sigríður Aðalsteinsdóttir, mezzósópran, Sesselja Kristjánsdóttir, mezzósópran, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór, Snorri Wium tenór og Jónas Ingimundarson leikur undir á píanó.
Stefnt er að því að gefa út heildarsafn tónskáldsins en þessi tvöfaldi hljómdiskur er fyrsti hluti útgáfunnar. Óhætt er að fullyrða að útgáfan er afar þýðingarmikið framtak í menningarsögulegu tilliti.
Með hljómdiskunum fylgir vegleg efnisskrá með öllum söngtextunum, á íslensku og í enskri þýðingu. Fjöldi ljósmynda úr fjölskyldualbúmi Sigvalda Kaldalóns prýða efnisskrána. Jón Ásgeirsson tónskáld og Trausti Jónsson veðurfræðingur skrifa um Sigvalda og verk hans.
Í texta Trausta segir m.a.: „Innkoma Sigvalda Kaldalóns í íslenskt tónlistarlíf á sínum tíma var hógvær í fyrstu, undirleikur á harmóníum eða píanó á söngskemmtunum, þátttaka í sönghópum og kirkjutónlistarstarfi. Allt án þess að nokkrum dytti í hug það stíflubrot sem varð þegar hann 35 ára gamall, orðinn héraðslæknir vestur í Ármúla við Djúp, laumaði með aðstoð vinar síns Sigurðar Þórðarsonar á Laugabóli út hefti með sjö sönglögum. Á fáum árum varð hann vinsælasti sönglagahöfundur þjóðarinnar og hefur vinsældunum ekki linnt síðan. Áhrif hans voru margþætt, hér má af handahófi nefna þrennt: Í fyrsta lagi varð frumkvæði hans fjölda sönglagahöfunda gríðarleg fyrirmynd, í öðru lagi reyndust lögin stórkostlegur happafengur fyrir söngvara um land allt, og í þriðja lagi urðu tónsmíðar hans einskonar viðmið þeirra sem vildu meiri og betri menntun, „áfram, lengra, upp og hærra“.“
Hugmyndin að útgáfu á einsöngslögum Sigvalda Kaldalóns er afkomenda tónskáldsins. Minningarsjóður Sigvalda Kaldalóns var stofnaður 1998 og er ætlað að standa straum af heildarútgáfu á tónsmíðum Sigvalda. Minningarsjóðurinn, afkomendur tónskáldsins, Menningarmiðstöðin Gerðuberg og Smekkleysa standa að þessum fyrsta hluta útgáfunnar.
Styrktaraðilar útgáfunnar eru: Íslandsbanki, KB-banki, Orkuveita Reykjavíkur og Sjóvá-Almennar.
2010