Fólk - með augum Ara
Ljósmyndasýning Ara Sigvaldasonar
19. nóvember 2004 - 9. janúar 2005
Myndir Ara eru mannlífsmyndir af götunni, teknar víðsvegar um heiminn á árunum 1988 til 2004. Myndirnar eru skyndimyndir að því leyti að þær eru teknar án alls undirbúnings og eru einskonar laumumyndir því fólkið á myndunum vissi fæst af því að það væri myndað fyrr en eftir á. Það er gert til að fanga stemningu, ná sérstökum svipbrigðum og augnablikum.
Þótt flestar myndanna sýni spaugilegar hliðar á mannfólkinu eru aðrar ljúfsárar en segja má að þær sýni vel fjölbreytileika mannlífsins. Myndirnar eiga það sammerkt að þær gætu hafa verið teknar hvar sem er í heiminum. Margar myndanna eru frá gömlu austantjaldslöndunum, allmargar eru teknar í París og Reykjavík en einnig má finna myndir frá Danmörku, Ítalíu, Tyrklandi og víðar.
Ari Sigvaldason er fæddur 1966. Hann hefur verið áhugaljósmyndari frá tvítugsaldri en starfar sem fréttamaður hjá Sjónvarpinu.
2010