Dimmalimm verðlaunin
Dimmalimm verðlaunin eru veitt árlega fyrir þá myndskreyttu barnabók sem skarar fram að mati dómnefndar. Verðlaunaafhendingin fer fram í Gerðubergi 6. desember kl. 17.
Árið 2003 hlaut Brian Pilkington verðlaunin fyrir bókina Mánasteinar í Vasanum.
Á verðlaunaafhendingunni mun Harpa Arnardóttir, leikkona, bregða sér í hlutverk Dimmalimmar. Auk þess munu nemendur úr Klassíska listdansskólanum koma fram. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Að verðlaununum standa: Penninn, Félag íslenskra bókaútgefenda, Myndstef, Gerðuberg og Félag íslenskra teiknara.
Dómnefndina skipa fulltrúar sem tilnefndir eru af Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Pennanum og Myndstefi, þau Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, Þórdís Alda Sigurðardóttir myndlistarmaður og Kalman le Sage de Fontenay, grafískur hönnuður. Aðalsteinn er formaður dómnefndar.
2010