Gerðuberg

 

Viðburðadagatal 2009


Sýningar frá fyrra ári...

23. nóvember - 11. janúar

Ungblind - Ljósmyndasýning Björns Sigurjónssonar
Blind ungmenni taka áskorun sinnar eigin fötlunar með þátttöku í sýningunni.

23. nóvember - 11. janúar

Utan-garðs
Málverkasýning Halldóru Helgadóttur

14. nóvember - 11. janúar

Í Boganum: Minningar Halldórs Viðars Garðarssonar

 

JANÚAR

7. og 9. janúar kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur

18. janúar - 15. mars

Þetta vilja börnin sjá! og afhending Dimmalimm verðlaunanna fyrir bestu myndskreytingu ársins 2008
Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem gefnar voru út 2008.
Boðið verður upp á leiðsögn fyrir skólabörn.

18. janúar - 15. mars

„Heyrðist eins og harpan væri að gráta“
Sýning á brúðum Leikbrúðulands úr Völsungasögu

18. janúar - 1. mars

Í Boganum: Úr högum og heimahögum
Hugi Jóhannesson sýnir vatnslitamyndir

 

FEBRÚAR

4. febrúar kl 20

Handverkskaffi
Þema: Hugmyndir að heimatilbúnum búningum á öskudaginn!
Umsjón: Selma Ragnarsdóttir, kjóla- og klæðskerameistari
Allir velkomnir! Takið prjónana, heklu- eða saumadótið með!

5. febrúar kl. 12:15 - 13:00

Klassík í hádeginu
Hádegistónleikar með Gunnari Kvaran, selló, og Nínu Margréti Grímsdóttur, píanóleikara.
Leikin verða verk eftir Couperin, Beethoven
Tónleikarnir verða endurteknir í Von í Efstaleiti föstudaginn 6. febrúar kl. 12:15 og þá einnig ásamt Áshildi Haraldsdóttur flautuleikara.

14. febrúar

Heimsdagur barna á Vetrarhátíð
Fjölbreyttar listsmiðjur og dagskrá fyrir krakka á öllum aldri.
Í samstarfi við Höfuðborgarstofu, Alþjóðahúsið í Breiðholti, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Miðberg og Kramhúsið.

22. febrúar

Kanntu að búa til öskupoka og bolluvendi?
Fjölskyldunámskeið í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands.

25. febrúar

Öskudagsball í Gerðubergi! Opið öllum hressum krökkum nær og fjær!
Í samstarfi við frístundamiðstöðina Miðberg.

 

MARS

4. mars kl 20

Handverkskaffi
Þema: Ávaxtaútskurður að hætti Tælendinga
Allir velkomnir! Takið prjónana, heklu- eða saumadótið með!

5. mars kl. 12:15

Klassík í hádeginu
Flytjendur: Hanna Dóra Styrmisdóttir og Nína Margrét Grímsdóttir

8. mars, 15. mars og 28. mars

Alli Nalli og tunglið
Möguleikhúsið frumsýnir leikrit byggt á sögum Vilborgar Dagbjartsdóttur.
Fyrir áhorfendur á aldrinum 1 - 7 ára.

21. mars

Bókaormaeldi - Barna- og unglingabókaráðstefna
Í samstarfi við IBBY á Íslandi, Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Upplýsingu, Félag fagfólks á skólasöfnum.

21. mars - 28. júní

Myrkur sannleikur - Kolanámumenn í Kína
Ljósmyndasýning Cinziu D'Ambrosi

21. mars - 3. maí

Í Boganum: Draumsýnir
Magnús H. Gíslason, alþýðulistamaður, sýnir landslagsmyndir

23. mars - 8. apríl

Ljósmyndanámskeið fyrir 17-25 ára ungmenni
Leiðbeinandi: Cinzia D'Ambrosi

 

APRÍL

1. apríl kl 20

Handverkskaffi
Þema: Páskaskreytingar og -föndur
Leiðbeinendur: Elva Björk Jónatansdóttir og Dóra Diego Þorkellsdóttir
Allir velkomnir! Takið prjónana, heklu- eða saumadótið með!

19. og 23. apríl

Alli Nalli og tunglið
Möguleikhúsið sýnir leikrit byggt á sögum Vilborgar Dagbjartsdóttur.
Fyrir áhorfendur á aldrinum 1 - 7 ára.

25. og 26. apríl kl. 14

Ég og umhverfi mitt
Nemendur á ljósmyndanámskeiði Cinziu D'Ambrosi sýna afrakstur sinn.

 

MAÍ

6. maí kl 20

Handverkskaffi
Um bókband og bóklist
Umsjón: Sigurborg Stefánsdóttir, myndlistarkona
Allir velkomnir! Takið með prjónana, heklu- eða saumadótið!

22. maí - 28. júní

Hvernig er að vera barn á Íslandi?
Sýning Umboðsmanns barna á teikningum og textum barna

22. maí - 13. september

Í Boganum: Landið í lit
Guðráður Jóhannsson, alþýðulistamaður, sýnir landslagsmálverk

26. maí kl. 17

Út í kött!
Dansleikhús fyrir börn - Lýðveldisleikhúsið
2. sýning verður fimmtudaginn 28. maí kl.17

 

JÚNÍ

8. - 26. júní

Leikhús möguleikanna
Sumarnámskeið Möguleikhússins fyrir börn á aldrinum 9-12 ára

22. júní

Tónleikar: Tríó Vadims Fyodorovs
Vadim Fyodorov, harmonika, Leifur Gunnarsson, kontrabassi, Gunnar Hilmarsson, gítar.
Aðgangseyrir: Kr. 1.500.-

 

JÚLÍ

Lokað vegna sumarleyfa starfsfólks frá 1. júlí - 10. ágúst

 

ÁGÚST

17. - 19. ágúst

Jazzsmiðjur og hádegistónleikar ungra tónlistarmanna
Kennarar: Hilmar Jensson, Jim Black og Sigurður Flosason
Þátttakendur: Trans kvintett, Reginfirra og Kvartett Leifs Gunnarssonar
Í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur

20. ágúst - 11. október

Sögur án orða
Ólöf Erla Einarsdóttir sýnir myndverk byggð á ljósmyndum sem endurskapaðar eru með hjálp tölvutækninnar

20. ágúst - 18. október

Í fréttum var þetta helst...
Sýning á skopteikningum Halldórs Baldurssonar frá 2007-2009
- Spéspegill sálartetus þjóðar

 

SEPTEMBER

september - desember

Línudans á striga
Sigurborg Stefánsdóttir sýnir málverk í kaffihúsi

2. september

Handverkskaffi
Flækjur og fínerí - prjónamenning á vefnum
Umsjón: Ragnheiður Eiríksdóttir, prjónakona með meiru
Allir velkomnir - takið með prjónana, heklu- eða saumadótið!

12. september - 17. október

Skopmyndateikning: Námskeið fyrir unglinga
Halldór Baldursson kennir grunnþætti skopmyndateiknunar
Kennt á laugardögum. Skráning: gerduberg@reykjavik.is

19. og 20. september

Iðunn áttræð!
Þjóðleg dagskrá að hætti Kvæðamannafélagsins Iðunnar
Verkefnisstjóri: Gunnsteinn Ólafsson

19. september - 8. nóvember

Í Boganum: Hún rís úr sumarsænum
Steinunn Einarsdóttir sýnir málverk í Boganum
innblásin af orku náttúrunnar í Vestmannaeyjum

26. og 27. september

Út í kött! Dansleikhús fyrir börn
Dansleikhús fyrir börn - Lýðveldisleikhúsið

 

OKTÓBER 

4. október

Tóney í Gerðubergi
Guðni Franzson og félagar leika af fingrum fram
í skemmtun fyrir alla fjölskylduna
www.toney.is

5. - 26. október

Má bjóða þér í ferðalag um söguheim Karitasar?
Bókmenntanámskeið um verk Kristínar Marju Baldursdóttur.
Fyrirlestrar, umræður og góðir gestir.
Kennari: Sigfríður Gunnlaugsdóttir
Kennt á mánudagskvöldum í október (4 skipti)

7. og 9. október

Kvæðamannafélagið Iðunn
Miðvikudagur - kvæðalagaæfing
Föstudagur - félagsfundur
Allir velkomnir!

7. október

Handverkskaffi - Húmor & Amor
Henna húðskreytilist
Umsjón: Darren Foreman
Allir velkomnir - takið með prjónana, heklu- eða saumadótið!

11. og 18. október

Alli Nalli og tunglið
Möguleikhúsið sýnir leikrit byggt á sögum Vilborgar Dagbjartsdóttur.
Fyrir áhorfendur á aldrinum 1 - 7 ára.

17. október

Óður til Höllu Eyjólfsdóttur skáldkonu (1866-1937)
Tónlist, ljóðalestur og fróðleikur
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir

17. október - 10. janúar

Svanurinn minn syngur
Sýning um líf og skáldskap Höllu Eyjólfsdóttur (1866-1937)
Sýningarstjóri: Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, sagnfræðingur
Tónlistardagskrá til heiðurs íslenskum skáldkonum og kventónskáldum

24. og 25. október

Litrík menning – gagnkvæm miðlun
Í tilefni Breiðholtsdaga; umræðusmiðjur, flóamarkaður
og kynning á þjónustu og menningarstarfsemi í Breiðholti. Allir velkomnir!

30. október og 1. nóvember

Klassík í hádeginu - Úr gullkistu sellósins
Flytjendur: Margrét Árnadóttir, selló, og Nína Margrét Grímsdóttir, píanó
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir

31. október

Ritþing - Stefnumót við Kristínu Marju Baldursdóttur
Innsýn í líf og feril rithöfundar.
Stjórnandi þingsins er Halldór Guðmundsson, bókmenntafræðingur og í hlutverki spyrla eru Ármann Jakobsson, íslenskufræðingur og Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri.

31. október - 3. janúar

Söguheimur Karitasar
Sýning byggð á verkum Kristínar Marju Baldursdóttur um listakonuna Karitas.
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.

 

NÓVEMBER

4. og 6. nóvember kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur

4. nóvember

Handverkskaffi
Brjótum saman bréf ... Bréfbrot / Origami
Umsjón: Björn Finnson
Allir velkomnir - takið með prjónana, heklu- eða saumadótið!

8., 14. og 28. nóvember kl. 14

Út í kött!
Dansleikhús fyrir börn - Lýðveldisleikhúsið
Sunnudaginn 8. nóvember og laugardagana 14. og 28. nóvember kl. 14

14. nóvember - 10. janúar

Í Boganum: Í gegnum tíðina
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir sýnir vatnslitamyndir og postulínsverk. Sigurbjörg hefur um árabil kennt postulínsmálun, þar af 7 ár í Félagsstarfinu í Gerðubergi.

15. nóvember

Tóney í Gerðubergi
Guðni Franzson og félagar leika af fingrum fram
í skemmtun fyrir alla fjölskylduna
www.toney.is

22. nóvember - 28. mars

Eldhúsáhöld í Safnarahorninu
Þórarinn Eldjárn, rithöfundur, og Sigurður Árnason, læknir, sýna forvitnileg eldhúsáhöld
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir

22. nóvember

Kellíngabækur - Bókmenntakynning kvenna
Í samstarfi við Góugleði- og Fjöruverðlaunahópinn
Skráning: gerduberg@reykjavik.is

27. og 29. nóvember

Klassík í hádeginu - Barokksónötur
Flytjendur: Joaquín Páll Palomares, fiðla og Nína Margrét Grímsdóttir, píanó
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir

29. nóvember kl. 15

Aðventa - Möguleikhúsið sýnir leikrit byggt á sögu Gunnars Gunnarssonar
Leikari: Pétur Eggerz - Leikstjóri: Alda Arnardóttir
Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir - Tónlist: Kristján Guðjónsson
www.moguleikhusid.is

 

DESEMBER

2. og 4. desember kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur

2. desember kl. 20

Handverkskaffi
Gott í gogginn ... jólakonfektgerð
Umsjón: Guðrún Sigríður Ágústsdóttir
Allir velkomnir - takið með prjónana, heklu- eða saumadótið!

9. desember kl. 20

Aðventa - Möguleikhúsið sýnir leikrit byggt á sögu Gunnars Gunnarssonar
Leikari: Pétur Eggerz - Leikstjóri: Alda Arnardóttir
Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir - Tónlist: Kristján Guðjónsson
www.moguleikhusid.is



2010