Gerðuberg

 

Viðburðadagatal 2010


Sýningar sem opnuðu 2009...

Söguheimur Karitasar
Sýning byggð á verkum Kristínar Marju Baldursdóttur um listakonuna Karitas.
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.
Sýningin stendur til 3. janúar.

Svanurinn minn syngur
Sýning um líf og skáldskap Höllu Eyjólfsdóttur (1866-1937)
Sýningarstjóri: Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, sagnfræðingur
Tónlistardagskrá til heiðurs íslenskum skáldkonum og kventónskáldum.
Sýningin stendur til 10. janúar.

Í Boganum: Í gegnum tíðina
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir sýnir vatnslitamyndir og postulínsverk. Sigurbjörg hefur um árabil kennt postulínsmálun, þar af 7 ár í Félagsstarfinu í Gerðubergi.
Sýningin stendur til 10. janúar

Eldhúsáhöld í Safnarahorninu
Þórarinn Eldjárn, rithöfundur, og Sigurður Árnason, læknir, sýna forvitnileg eldhúsáhöld
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.
Sýningin stendur til 28. mars.

________

JANÚAR

 

6. og 8. janúar kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur

13. janúar kl. 20-22

Handverkskaffi - Húfa á viku á heilt ár
Umsjón: Edda Lilja Guðmundsdóttir

16. janúar kl. 14

Dimmlimm - Íslensku myndskreytiverðlaunin
afhent fyrir bestu myndskreyttu barnabókina 2009
Eymundsson, Félag íslenskra bókaútgefenda og Myndstef standa að styrkveitingunni ásamt Menningarmiðstöðinni Gerðubergi

16. janúar - 7. mars

Þetta vilja börnin sjá!
Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum sem komu út 2009.
Boðið er upp á leiðsagnir og dagskrá fyrir 8 ára skólabörn í samstarfi við Borgarbókasafnið.
Um er að ræða farandsýningu. Áhugasamir sýningaraðilar hafi samband við listadeild Gerðubergs.

16. janúar - 7. mars

Strengir
Sýning á leikbrúðum, grímum og búningum Messíönu Tómasdóttur frá nokkrum sýningum
Strengjaleikhússins um þriggja áratuga skeið.
„Leikbrúðan er hugsun færð í form.“

16. janúar - 28. mars

Við veginn
Ljósmyndasýning Sigurðar Stefáns Jónssonar

17. janúar kl. 14-16

Syngjum og kveðum... um Þorrann, snjóinn og nýárið!
Eigum saman góða stund einn sunnudag í mánuði í kaffihúsinu í Gerðubergi.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster.

17. janúar - 21. mars

Það kviknaði líf
Jenný - Jónína Katrín Jónsdóttir, alþýðulistakona, sýnir myndverk af ýmsum toga í Boganum.

24. janúar kl. 14-15

Tóney í Gerðubergi - Steinn í Tjarnarlundi
Nemendur úr Tónlistarskóla Kópavogs flytja nýtt tónverk eftir Snorra Sigfús Birgisson við ljóð Steins Steinarrs.
Umsjón: Guðni Franzson
www.toney.is

 

FEBRÚAR

 

3. og 5. febrúar kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur

3. febrúar kl. 20-22

Handverkskaffi - Flugur á sveimi
Engilbert Jensen kynnir veiðiflugur og fluguhnýtingar

10. febrúar kl. 20-22

Galdur litanna
Kvöldnámskeið í litafræði fyrir fólk í skapandi námi og starfi.
Skráning: gerduberg@reykjavik.is. Námskeiðsgjald: Kr. 4.000.-
Umsjón: Messíana Tómasdóttir, búninga- og leikmyndahönnuður

14. febrúar kl. 14-16

Syngjum og kveðum... um ástina og tilhugalífið á Valentínusardaginn!
Eigum saman góða stund einn sunnudag í mánuði í kaffihúsinu í Gerðubergi.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster.

14. febrúar

Kanntu að búa til öskupoka og bolluvendi?
Komdu með mömmu, pabba, afa eða ömmu! Allt efni á staðnum.
Fjölskyldunámskeið í Gerðubergi frá kl. 14 - 15 og í Grófarhúsi kl. 15 - 16.30
Í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands og Borgarbókasafn Reykjavíkur.

17. febrúar kl. 14-16

Öskudagsgleði fyrir alla káta krakka!
Hljómsveitin Pollapönkarar leikur fyrir dansi og Jón Víðis, töframaður, kemur í heimsókn.
Í samstarfi við frístundamiðstöðina Miðberg.

21. febrúar kl. 14-15

Tóney í Gerðubergi - Karnival
Blásarahópur Tónlistarskólans á Seltjarnarnesi færa okkur suðræna stemningu með sömbu og suður-amerískri sveiflu.
Umsjón: Guðni Franzson

23., 24. og 25. febrúar

Farfuglinn - Rafmögnuð ópera fyrir ungt fólk
Tónlist: Hilmar Þórðarson. Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir.
Kennsluefni í boði fyrir nemendahópa.
Bókanir: gerduberg@reykjavik.is. Í samstarfi við Strengjaleikhúsið og Tónlist fyrir alla.

26. og 28. febrúar

Klassík í hádeginu - Vor í París
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir.
Flytjendur: Áshildur Haraldsdóttir, flauta .
Tónleikarnir fara fram á föstudeginum kl. 12:15-13:00 og á sunnudeginum kl. 13:15 - 14:00.
www.ninamargret.com

 

MARS

 

mars - apríl

Krummi krunkar úti...
Lærum að kveða og syngja íslensk alþýðulög. Dagskrá fyrir leikskólabörn.
Umsjón: Bára Grímsdóttir.

3. og 5. mars kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur

3. mars kl. 20-22

Handverkskaffi - Bút fyrir bút í þrjátíu ár
Anna Margrét Árnadóttir kynnir Íslenska bútasaumfélagið og viðburði í tengslum við 10 ára afmæli þess.
www.butasaumur.is

13. mars kl. 10.30-13

Úr grárri forneskju í glansandi bók
Barna og unglingabókaráðstefna í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur, IBBY á Íslandi, Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, og Upplýsingu - Félag bókasafns- og upplýsingafræða.

13. mars kl. 14

Langafi prakkari
Laugardaginn 13. mars kl. 14. verður sýnt leikritið Langafi prakkari eftir Pétur Eggerz, byggt á sögum Sigrúnar Eldjárn.
Langafi og Anna eru leikin af þeim Pétri Eggerz og Aino Freyju Järvelä. Leikstjóri Pétur Eggerz, búninga gerir Katrín Þorvaldsdóttir, leikmynd er hönnuð af leikhópnum og tónlist eftir Vilhjálm Guðjónsson.
Aðgangseyrir: Kr. 1.500.-

14. mars kl. 14-16

Syngjum og kveðum... lög úr Eyjum, frá Írlandi og Hjaltlandseyjum, vikivaka og söngdansa frá Íslandi og Færeyjum!
Eigum saman góða stund einn sunnudag í mánuði í kaffihúsinu í Gerðubergi frá kl. 14-16.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster.

20. mars - 9. maí

Ástríðulist
Samsýning lærðra og leikinna listamanna. Sköpunargleði, frelsi og frumleg sýn á lífið og listina.
Sýningarstjórar: Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.

21. mars kl. 14-15

Tóney í Gerðubergi - Ástarsaga úr fjöllunum
Egill Ólafsson syngur og segir frá tröllunum í sögu Guðrúnar Helgadóttur.
Tónlistin er eftir Guðna Franzson og er flutt af Caput-hópnum.
Umsjón: Guðni Franzson
www.toney.is

25. mars - 2. maí

Landsýn
Alþýðulistamennirnir Dagbjört Matthíasdóttir og Magnús H. Traustason
sýna olíumálverk í Boganum.

26. og 28. mars

Klassík í hádeginu - 20. öldin
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir.
Flytjendur: Natalia Benedetti, klarinett og Sebastiano Brusco, píanó.
Tónleikarnir fara fram á föstudeginum kl. 12:15-13:00 og á sunnudeginum kl. 13:15 - 14:00.
www.ninamargret.com

 

APRÍL

 

7. og 9. apríl kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur

7. apríl kl. 20:30

Vinir Káins
Kvæðamannafélagið Iðunn og Baggalútur standa að afmælisfundi um Káinn.

7. apríl kl. 20-22

Handverkskaffi - Mósaík meistarans
Alice Olivia Clarke kynnir mósaík og segir frá sýningu sinni Brautir í kaffihúsinu
www.aok.is

7. apríl - 31. júní

Brautir
Alice Olivia Clarke sýnir mósaíkverk í kaffihúsinu í Gerðubergi
www.aok.is

10. apríl kl. 14-15

Langafi prakkari
Möguleikhúsið sýnir leikritið langafi prakkari sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárns.
Aðgangseyrir: Kr. 1.500.-
www.moguleikhusid.is

11. apríl kl. 14-16

Syngjum og kveðum saman... um vorið góða grænt og hlýtt
Eigum saman góða stund einn sunnudag í mánuði í kaffihúsinu í Gerðubergi.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster

18. apríl kl. 14-15

Tóney í Gerðubergi - Heimstónlist - ATH. Fellur niður...
Nemendur Fellaskóla flytja tónlist frá öllum heimshornum.
Umsjón: Guðni Franzson
www.toney.is

24. apríl kl.13-17

Heimsdagur barna á Barnamenningarhátíð  í Reykjavík 2010
Fjölbreyttar listsmiðjur og dagskrá fyrir krakka á öllum aldri.
Í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur, frístundamiðstöðin Miðberg og Höfuðborgarstofu.

30. apríl og 2. maí

Klassík í hádeginu - Aríur og rússnesk sönglög
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir.
Flytjendur: Nathalía Druzin Halldórsdóttir, mezzósópran og Gissur Páll Gissurarson, tenór.
Tónleikarnir fara fram á föstudeginum kl. 12:15-13:00 og á sunnudeginum kl. 13:15 - 14:00.
www.ninamargret.com


MAÍ

 

5. og 7. maí kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur

5. maí kl. 20-22

Handverkskaffi - Lesið í skóginn - tálgað í tré
Umsjón: Ólafur Oddsson

6. maí - 30. júní

Allir hafa hæfileika
Listahópur Iðjubergs sýnir handverk og listmuni í Boganum.
Í samstarfi við List án landamæra.

9. maí kl. 14-16

Syngjum og kveðum... lög frá ýmsum þjóðlöndum
Eigum saman góða stund einn sunnudag í mánuði í kaffihúsinu í Gerðubergi.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster.

16. maí - 30. júní

Breiðholt - Í augnablikinu
Ljósmyndasýning Friðgeirs Helgasonar
Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010.

16. maí - 30. júní

Breiðholt - Í upphafi
Sýning á ljósmyndum sem teknar eru í Breiðholti á milli '70 og '80
Í samstarfi við Ljósmyndasafn Reykjavíkur

16. maí kl. 14-15

Tóney í Gerðubergi - Grannmetislög
Caput-hópurinn, ásamt Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur, flytja sönglagaflokk eftir Hauk Tómasson og Þórarin Eldjárn.
Umsjón: Guðni Franzson
www.toney.is

 

JÚNÍ

 

Leikhús möguleikanna
Leiklistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 9-12 ára
Sjá www.moguleikhusid.is

 

JÚLÍ

Menningarmiðstöðin Gerðuberg verður lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks frá 1. júlí - 9. ágúst.

 

ÁGÚST

 

25. ágúst kl. 10-16

Jazzsöngsmiðja Kristjönu Stefáns
Farið yfir helstu stílbrigði í jazzsöng.
Kennarar: Kristjana Stefánsdóttir og Agnar Már Magnússon.
Skráning: gerduberg@reykjavik.is. Smiðjugjald: Kr. 5.000.-
Í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur.

26. ágúst kl. 20

Hefðin heiðruð – jazz standardar og bebop
Kristjana Stefánsdóttir, jazzsöngkona kemur fram ásamt Agnari Má Magnússyni sem leikur á píanó,                Valdimari K. Sigurjónssyni á kontrabassa og Scott McLemore á trommur.
Aðgangseyrir: Kr. 2.000.- Miðasala samdægurs í Gerðubergi frá kl. 17.
Í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur.

26. ágúst – 17. október

Hugarflug
Aðalbjörg Þórðardóttir sýnir málverk.
Svanir sem sagnaminni , náttúrufyrirbrigði og táknmyndir sálarinnar.
www.abba.is

 

SEPTEMBER

 

1. september kl. 20

Handverkskaffi  – Að fanga liti jurtanna
Sigrún Helgadóttir og Þorgerður Hlöðversdóttir kynna jurtalitun.

4. september – 10. október

Viðbrögð
Jón Laxdal Halldórsson sýnir listaverk unnin úr pappír úr tímaritinu Fálkanum.
www.freyjulundur.is

4. september – 31. október

Ísland í ramma...
Gísli Hjálmar Svendsen sýnir ljósmyndir í kaffihúsi.

9. september – 7. nóvember

Trífólíum
Henrik Árnason Aunio sýnir abstrakt málverk í Boganum.

11. og 25. september kl. 14-15

Prumpuhóllinn
Barnaleikrit eftir Þorvald Þorsteinsson.
Aðgangseyrir: Kr. 1.500.-
www.moguleikhusid.is

12. september kl. 14

Um eldhúsáhöld eru áhöld
Sigurður Árnason og Þórarinn Eldjárn verða með uppistand á síðasta sýningardegi á eldhúsáhöldum sínum í Safnarahorni.

12. september kl. 14-16

Ævintýravagninn
Viltu leika prinsessu, riddara, álfamey eða sjóræningja?
Leiklistarsmiðja fyrir 8-12 ára.
Skráning: gerduberg@reykjavik.is. Smiðjugjald: Kr. 1.500.-
Umsjón: Pétur Eggerz og Alda Arnardóttir.

18. september – 30. júní

Bráðum koma blessuð jólin ...
Sýning á gömlum jólakortum, jólatrjám, jólaskrauti og leikföngum í Safnarahorni.
Í samstarfi við Árbæjarsafn og Fríðu frænku.
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.

19. september kl. 14-16

Syngjum og kveðum ... um dýrin okkar stór og smá
Taktu þátt í ljúfri söngstund í kaffihúsinu!
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster.

 

OKTÓBER

 

3. október kl. 14-16

Ævintýravagninn
Viltu leika prinsessu, riddara, álfadís eða sjóræningja?

Leiklistarsmiðja fyrir 8-12 ára.
Skráning: gerduberg@reykjavik.is Smiðjugjald: Kr. 1.500.-
Umsjón: Pétur Eggerz og Alda Arnardóttir.

6. október kl. 20

Handverkskaffi - Áttu apahönd?
Björn Finnsson kynnir hnútagerðarlist og kennir gestum að hnýta apahönd.

6. og 8. október kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur

11. og 13. október kl. 20-22

Þórbergur í endurnýjun lífdaga
Bókmenntanámskeið um Þórberg Þórðarson rithöfund.
Fyrirlestrar og umræður í góðum hópi!
Umsjón: Pétur Gunnarsson
Skráning: gerduberg@reykjavik.is. Þátttökugjald: Kr. 8.000.-

16. október kl.  14-16

Möguleikhúsið í 20 ár
Fjölbreytt leiklistardagskrá fyrir alla fjölskylduna!
http://www.moguleikhusid.is

17. október kl. 14-16

Syngjum og kveðum... um álfa, tröll og vætti
Taktu þátt í ljúfri söngstund í kaffihúsinu!
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster.

23. október kl. 14-15

Prumpuhóllinn
Barnaleikrit eftir Þorvald Þorsteinsson.
Aðgangseyrir: Kr. 1.500.-
www.moguleikhusid.is

29. og 31. október

Klassík í hádeginu - Norskir tónar hljóma undurblíðir 
Flutt verða ljóðræn smáverk og stórfengleg sónata Griegs.
Föstudag kl. 12:15 – 13:00 og sunnudag kl. 13:15 – 14:00.
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari.
Flytjandi ásamt Nínu: Margrét Árnadóttir, sellóleikari.
www.ninamargret.com

31. október – 13. mars

Ormurinn ógnarlangi  ... söguheimur norrænnar goðafræði 
Sýningin er á dagskrá Norrænu listahátíðarinnar í Reykjavík, ting.
Hönnun og sýningarstjórn: Kristín Ragna Gunnarsdóttir.
Boðið verður upp á leiðsagnir fyrir skólahópa. Sjá hér..

31. október – 16 . janúar

Hávamál
Sýning á myndskreytingum Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur.
Myndirnar munu birtast í bókinni Hávamál þar sem Þórarinn Eldjárn enduryrkir hina fornu speki fyrir börn.

 

NÓVEMBER

 

1. og 3. nóvember kl. 20-22

Hávamál
Bókmenntanámskeið um hina fornu lífsspeki Óðins.
Fyrirlestrar og umræður í góðum hópi!
Umsjón: Þórarinn Eldjárn.
Skráning: gerduberg@reykjavik.is Þátttökugjald: 6.000.- kr. (Ath. lækkað verð áður auglýst 8.000 kr).

3. nóvember kl. 20

Handverkskaffi – Blómarósir
Jeab (Sirivorraluck Boonsart) kynnir austurlenska blómagerð úr vír og litríkum nælonsokkum.

3. og 5. nóvember kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur

3. nóvember – 9. janúar

Dægradvöl
Ágúst Jónsson sýnir abstrakt málverk í kaffihúsi.

6. nóvember kl. 14

Alli Nalli og tunglið
Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit eftir Pétur Eggerz byggt á sögum Vilborgar Dagbjartsdóttur.
Aðgangseyrir: Kr. 1.500.-
www.moguleikhusid.is

7. nóvember kl. 14-16

Hömrum járn og tökum flugið
Í smiðju goðanna býðst börnum að búa til Valsham Freyju og Þórshamar Þórs. 
Fjölskyldusmiðja í tengslum við sýninguna Ormurinn ógnarlangi þar sem skyggnst  
er inn í söguheim norrænnar goðafræði.
Umsjón: Ilmur Stefánsdóttir.
Skráning: gerduberg@reykjavik.is Smiðjugjald: Kr. 1.500.-

10. nóvember kl. 20

Völuspá
Leikrit fyrir unga sem aldna frá 12 ára aldri eftir Þórarin Eldjárn.
Aðgangseyrir: Kr. 2.000.-
www.moguleikhusid.is

11. nóvember

Það vex eitt blóm fyrir vestan
Svava Sigríður Gestsdóttir sýnir vatnslitamyndir og málverk í Boganum.

13. nóvember kl. 13.30- 16.00

Ritþing: Stefnumót við Pétur Gunnarsson
Innsýn í líf og feril rithöfundar.
Stjórnandi: Torfi H. Tulinius.
Spyrlar: Kristján Kristjánsson og Soffía Auður Birgisdóttir.

15. og 17. nóvember kl. 20-22

Upp sé ég koma öðru sinni...
Námskeið um norrænu goðafræðina sem uppsprettu nýrra verka,
fyrir fólk í skapandi námi og starfi.
Umsjón: Kristín Ragna Gunnarsdóttir.
Skráning: gerduberg@reykjavik.is Þátttökugjald: 6.000.- kr. (Ath. lækkað verð áður auglýst 8.000 kr).

20. nóvember kl. 13-17

Kellíngabækur: Konur kynna ritverk sín
Í samstarfi við Góugleði- og Fjöruverðlaunahópinn.
Skráning: gerduberg@reykjavik.is

21. nóvember kl. 14-16

Syngjum og kveðum... um hetjur hafsins
Taktu þátt í ljúfri söngstund í kaffihúsinu!
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster.

26. og 28. nóvember

Klassík í hádeginu - Djúp tjáning meistara Bach
Föstudag kl. 12:15 – 13:00 og sunnudag kl. 13:15 – 14:00.
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari.
Flytjandi ásamt Nínu: Joaquín Páll Palomares, fiðluleikari.

 

DESEMBER

 

1. desember kl. 20

Handverkskaffi  – Jóladjásn
Kristín Arngrímsdóttir kennir gestum að búa til jólalegar klippimyndir.

1. og 3. desember kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur

5. desember kl. 14

Aðventa - Möguleikhúsið sýnir leikrit byggt á sögu Gunnars Gunnarssonar

Sýningin fellur niður.

Leikari: Pétur Eggerz - Leikstjóri: Alda Arnardóttir
Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir - Tónlist: Kristján Guðjónsson
Aðgangseyrir: Kr. 2.000.-
www.moguleikhusid.is


 

Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar...

2011