Handverkskaffi 2010
Gerðuberg stendur fyrir handverkskaffi fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði. Markmiðið er að bjóða upp á notalega kvöldstund þar sem gestir geta fengið sér kaffi og með því, spjallað og jafnvel tekið í handavinnuna. Boðið er upp á stuttar skemmtilegar kynningar og stundum sýnikennslu, allt eftir viðfangsefni kvöldsins. Handverkskaffið hefst kl. 20 og stendur til kl. 22, aðgangur er ókeypis.
1. september
Að fanga liti jurtanna
Langar þig að vita hvernig lita má garn með jurtum úr íslenskri náttúru? Þær Sigrún Helgadóttir og Þorgerður Hlöðversdóttir kynna jurtalitun fyrir gestum á fyrsta handverkskaffi haustins í Gerðubergi. Jurtalitun er heillandi enda sameinar hún náttúruupplifun, útiveru, gamlar hefðir og menningu en um leið nýtt og spennandi handverk. Þær stöllur leiða viðstadda í allan sannleika um töfraheim jurtalitunar og á staðnum verða sýnishorn af jurtum og jurtalituðu garni.
Sigrún er líf- og umhverfisfræðingur en Þorgerður er textíllistakona og kennari. Þær hafa árum saman unnið að jurtalitun og m.a. kennt hana á námskeiðum hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands.
6. október
Áttu apahönd?
Björn Finnsson kynnir hnútagerðarlist og kennir viðstöddum að búa til apahönd. Apahönd er skrauthnútur sem myndar eins konar bolta sem hægt er að nota í ýmsum tilgangi, til að mynda sem lyklakippu eða sem leikfang fyrir hunda. Efniviður verður á staðnum og fá gestir að útbúa sína eigin apahönd og taka með sér heim. Margir tengja hnúta eingöngu við skáta en skrauthnútar eru sannarlega skemmtilegir fyrir hvern sem er, jafnt unga sem aldna.
Björn Finnsson er áhugamaður um ýmiskonar handverk. Hann hefur leiðbeint börnum og fullorðnum um árabil á ýmsum vettvangi. Björn starfar hjá ÍTR sem verkefnastjóri í Miðbergi sem er frístundamiðstöð fyrir börn á aldrinum 6-16 ára.
3. nóvember
Blómarósir
Hægt er að skapa fegurstu blóm og rósir úr litríkum nælonsokkum. Kostir blómarósa af þessari gerð eru ótvíræðir, þær standa lengi og óþarft er að vökva þær. Jeab (Siriworraluck Boonsart) kynnir austurlenska blómagerð úr vír og nælonsokkum fyrir gestum. Möguleikarnir með þessari aðferð eru nánast óþrjótandi þar sem ímyndunaraflið er eina hindrunin. Hráefni til blómagerðar verður á staðnum og gestir fá að reyna sig undir handleiðslu Jeab.
Jeab kemur frá Tælandi. Hún hefur verið búsett hér á landi um árabil og starfar hjá ÍTR sem verkefnastýra Vinasels.
1. desember
Jóladjásn
Með skærum og pappír einum saman er hægt að galdra fram fegurstu jóladjásn. Þetta kvöld kynnir Kristín Arngrímsdóttir jólalega klippimyndagerð fyrir gestum. Kristín verður með eigin sýnishorn á staðnum og veitir gestum sýnikennslu í einföldu klippi. Snjókorn og englar eru meðal þess sem gestum býðst að skapa. Pappír og skæri eru efniviður og áhöld sem allir hafa aðgang að og því auðvelt að halda áfram eftir að heim er komið.
Kristín Arngrímsdóttir er myndlistamaður. Hún hefur víða komið við í störfum sínum, m.a. myndskreytt fjölda barnabóka nú síðast bókina Arngrímur apaskott og fiðlan sem prýdd er klippimyndum.
Dagskrá jan-maí:
13. janúar
Húfa á viku í heilt ár
Edda Lilja Guðmundsdóttir setti sér það markmið að hekla eða prjóna eina húfu á viku allt árið 2009. Skilyrði var að engar tvær húfur væru eins og að þær væru allar gerðar úr garni sem hún átti þegar til í fórum sínum. Eddu tókst markmið sitt fyrir síðasta ár og hefur að auki sett sér metnaðarfullt markmið fyrir árið 2010. Hún segir frá húfunum 52, sýnir nokkrar þeirra og ljóstrar upp vikulegu verkefni sínu þetta árið.
Edda Lilja er textílkennari að mennt. Hún hefur nú lagt kennsluna á hilluna til að geta sinnt í fullu starfi hugðarefnum sínum; frjálsu hekli, prjóni, skartgripagerð og fleiru.
3. febrúar
Flugur á sveimi - fluguhnýtingar
Veiðiflugum í íslenskri náttúru má skipta í laxaflugur, straumflugur og silungaflugur. Að hnýta flugur er vetrarverkefni marga stangveiðimanna og -kvenna, enda eykur það að margra mati gildi veiðinnar að nota eigin flugur. Efniviður til fluguhnýtinga er fjölbreyttur og útkoman oft litrík og heillandi. Engilbert Jensen kynnir fluguhnýtingar fyrir gestum. Hann mun sýna tilbúnar flugur en jafnframt hafa efnivið og verkfæri á staðnum.
Engilbert þekkja flestir sem liðsmann hljómsveitarinnar Hljóma en færri vita að hann er ástríðufullur áhugamaður um fluguhnýtingar.
3. mars
Bút fyrir bút í þrjátíu ár - Íslenska bútasaumsfélagið 10 ára
Íslenska bútasaumsfélagið fagnar á þessu ári 10 ára afmæli sínu. Af því tilefni heldur félagið veglega Afmælishátíð í Perlunni í haust undir yfirskriftinni „Bút fyrir bút í 30 ár“. Anna Margrét Árnadóttir kynnir starf Íslenska bútasaumsfélagsins og viðburði tengda afmælisárinu en einnig sýnir hún verk sem spanna þá vídd og fjölbreytni sem bútalist býður upp á. Borgarbókasafnið í Gerðubergi kynnir einnig handverksbækur og tímarit.
Anna Margrét Árnadóttir er fræðslufulltrúi Íslenska bútasaumsfélagsins og formaður afmælisnefndar þess. Hinn félagslegi þáttur er það sem heillar Önnu Margréti helst: „Að sauma saman því það er svo gaman!”.
7. apríl
Mósaík meistarans
Mósaík er mynd eða verk sett saman úr litlum mislitum brotum af flísum. Meðal færustu listamanna á þessu sviði er Alice Olivia Clark móasík-hönnuður. Hún einbeitir sér að gerð stærri veggmynda, en vinnur auk þess minni verk og nytjahluti. Nýlegt verk hennar er Tré lífsins 2009-2011 í Hafnarfjarðarkirkju. Kjarni verksins er tré í formi keltnesks kross sem laufgast næstu árin þegar fermingarbörn vinna hver sitt lauf og bæta við verkið. Alice segir frá listamannsferli sínum og kynnir mósaík fyrir gestum. Þetta kvöld opnar Alice einnig sýninguna Brautir í kaffihúsinu þar handverkskaffið er haldið.
Alice Olivia er fædd og uppalin í Kanada en hefur búið á Íslandi síðustu 18 árin. Alice starfrækir vinnustofu í Hafnarfirði þar sem hún vinnur að list sinni og heldur námskeið.
5. maí
Lesið í skóginn tálgað í tré
Ólafur Oddsson kynnir fyrir gestum ferskar viðarnytjar og tálgutækni. Tálgun í ferskan við er frábrugðin annarri tálgun að því leyti að viðurinn er mjúkur og ilmandi. Auk tálgutækninnar sýnir hann þau áhöld sem notuð eru. Einnig verða til sýnis nytjagripir og skrautmunir sem unnir eru úr ferskum við.
Ólafur hefur um árabil kennt tálgun og ferskar viðarnytjar í Kennaraháskóla Íslands og á námskeiðum fyrir almenning víða um land við góðan orðstýr.
2010