Gerðuberg

 

Strengir


Sýning á leikbrúðum, grímum og búningum Messíönu Tómasdóttur frá nokkrum sýningum Strengjaleikhússins um þriggja áratuga skeið.
16. janúar - 7. mars 2010

 

„Leikbrúðan er hugsun færð í form.“


 

StrengirLeikbrúður, búningar og grímur frá nokkrum sýningum Strengjaleikshússins prýða nú sýningarrými í Gerðubergi. Sýningin er litrík og heillandi og höfðar jafnt til barna og fullorðinna.

Messíana Tómasdóttir stofnaði Strengjaleikhúsið árið 1983 en nafn leikhússins vísar til strengja í brúðum og hljóðfærum. Frá stofnun hefur leikhúsið við góðan orðstýr flutt fjölda tónlistar- og leikbrúðuverka, ásamt því að frumflytja leikverk með nútímatónlist, aðallega óperur. Í mörgum verkanna eru hafa leikarar skýr og sýnileg hlutverk og stjórna að auki brúðunum, en í öðrum verkum eru þeir lítt áberandi og falla sem mest inn í bakgrunninn. Í verkum sínum leggur Messíana áherslu á ónlist, hið sjónræna og samspil lita og tilfinninga. Hún notar búninga, grímur, leikbrúður og liti á óhefðbundinn hátt til að vekja hughrif.

Messíana er fjölhæf listakona en hún semur handrit, gerir leikmyndirgrímur og búninga ásamt því að leikstýra. Verkin byggja gjarnan á tónlistarverkum, oft nútímaverkum sem stundum eru samin sérstaklega fyrir sýningar Messíönu. Sýningar Strengjaleikhússins eru margar gerðar sérstaklega fyrir börn en Messíana vinnur þá námsefni til þess að auka ánægju og skilning áhorfeda. Margar sýningarnar hafa farið í sýningarferðir erlendis.

Búningar og grímur á sýningunni STRENGIR eru úr óperunni Skuggaleikur (2006), barnaóperunni Undir drekavæng (2005), óperuleiknum Maður lifandi (1999) og brúðuverkinu Spor regnbogans (2007). Leikbrúður eru frá brúðusýningunum Bláa stúlkan (1983), Sjö spegilmyndir (1987),  Ævintýraóperan Sónata (1994) og barnaóperunni Undir drekavæng (2005). Fylgjast má með myndbroti úr óperunni Skuggaleik á sjónvarpsskjá. Auk þess eru sýnishornum úr nokkrum verkum varpað á vegg.

Samhliða sýningunni verður Farfuglinn - Rafmögnuð ópera fyrir ungt fólk, flutt í Gerðubergi dagana 23., 24. og 25. febrúar. Tónlist í sýningunni er eftir Hilmar Þórðarson en handrit, leikstjórn, leikmynd og búningar eru í höndum Messíönu. Sýningin fjallar um dauðann og er heillandi blanda af raftónlist og óperu og höfðar því til unglinga og ungs fólks. Flytjendur í verkinu eru Ingibjörg Guðjónsdóttir, Jóhann Smári Sævarsson og Halla Messíana Kristinsdóttir. Kennsluefni í litafræði eri í boði fyrir nemendahópa. Bókanir: gerduberg@reykjavik.is
 
Messína Tómasdóttir (f. 1940) á að baki nám í leikbrúðugerð í Frakklandi, nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands auk listnáms í Danmörku og Færeyjum. Messíana hefur hlotið fjölda verðlauna og styrkja fyrir verk sín og ferðast með sýningar Strengjaleikhússins víða um lönd. Auk leiksýninga hefur hún haldið fjölda einkasýninga þar sem hún hefur m.a. sýnt myndlist, plexiskúlptúra, eigin tónverk, klippimyndir auk brúða, gríma og búninga. Hún hefur einnig unnið leikmyndir og búninga fyrir fjölda sýninga í atvinnuleikhúsum, óperum og sjónvarpi.

Sjá ferilskrá Messíönu Tómasdóttur...

Sýningin stendur til 7. mars. Boðið er upp á leiðsögn fyrir hópa, gerduberg@gerduberg.is.

2011