Þetta vilja börnin sjá!
Sýningin hefur verið haldin árlega frá árinu 2002. Á sýningunni má sjá myndskreytingar úr nýútkomnum íslenskum barnabókum. Myndskreytarnir keppa jafnframt um íslensku myndskreytiverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm. Dómnefnd velur eina bók og verða úrslitin kunngerð í Gerðubergi við opnun sýningarinnar kl. 14.
Starfsfólk Gerðubergs og Borgarbókasafnsins munu bjóða 8 ára skólabörnum upp á spennandi dagskrá á sýningartímabilinu þar sem þau fá að skoða sýningarnar, og taka þátt í spennandi leikjum á bókasafninu. Á sama tíma opnar sýningin Strengir, þar sem Messíana Tómasdóttir sýnir leikbrúður, grímur og búninga.
Sjá nánari upplýsingar um leiðsögnina á www.gerduberg.is
Sýningin Þetta vilja börnin sjá! er farandsýning og er áhugasömum sýningaraðilum bent á að hafa samband við verkefnisstjóra listadeildar í Gerðubergi.
Þátttakendur í sýningunni í ár eru:
Arnheiður Borg, Áslaug Jónsdóttir, Björk Bjarkadóttir, Brian Pilkington, Bryndís Björgvinsdóttir, Brynhildur Jenný Bjarnadóttir, Erla Sigurðardóttir, Freydís Kristjánsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson, Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, Halldór Baldursson, Helga Egilson, Jean Posocco, Jón Ólafur Ólafsson, Karl J. Jónsson, Kristín Arngrímsdóttir, Linda Ólafsdóttir, Phil Nibbelink, Ragnheiður Gestsdóttir, Robekka Art Studio, Rósa Matt, Sigríður Lillý Baldursdóttir, Sigrún Eldjárn, Sólveig Stefánsson, Þórgunnur Oddsdóttir.
Sýningin stendur til 7. mars og er opin virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16.
Ókeypis aðgangur!
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnisstjóri
Netfang: holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is, s. 575 7702
Veffang: www.gerduberg.is