Gerðuberg

 

Það kviknaði líf


Jenný - Jónína Katrín Jónsdóttir
Í Boganum 17. janúar - 21. mars 2010

 

JennýJenný byrjaði að teikna og mála sem barn og unglingur. Hlé varð á vegna anna við vinnu og barnauppeldi eins og gengur. Vegna veikinda þurfti hún að hverfa frá fastri vinnu í kringum 1990 og hafði því aukinn tíma til hannyrða og listsköpunar. Jenný var iðin við handavinnu, svo sem prjón og sauma. Kvöld eitt hafði hún ekkert að gera og fann léreft inni í skáp og byrjaði að mála á það með taulitum. Þetta verk var upphafið að auknum listáhuga hennar. Hún fékk skömmu síðar akrýlliti, pensla og striga í jólagjöf frá systur sinni. Gjöfin varð til þess að hún fór að prófa sig áfram í myndlist.

Á sýningunni Það kviknaði líf gefur að líta fjölbreytt verk listakonunnar. Verkin eru einlæg og á köflum afar litsterk. Flest þeirra eru óhlutbundin (abstrakt) þó inn á milli megi sjá hlutbundin verk, þar á meðal andlit og manneskjur af ýmsu tagi.
Sýningin í Boganum er fyrsta einkasýning Jennýar.

Jónína Katrín Jónsdóttir er fædd á Sauðárkróki 2. febrúar 1955. Jenný, eins og hún er alltaf kölluð, er fimmta í röðinni af sjö systrum. Hún ólst upp á Sauðárkróki en fluttist til Reykjavíkur sautján ára. Jenný bjó að nýju á Króknum á árunum ‘76-‘85. Fluttist þá aftur til Reykjavíkur, bjó í tvö ár í Danmörku en býr nú í Breiðholtinu. Jenný á tvö börn, son og dóttur og fjögur barnabörn.

Jenný er snyrtifræðingur að mennt og lærði í því námi litafræði. Sem myndlistamaður er hún algerlega sjálfmenntuð, myndefnið kemur til hennar að sjálfu sér þegar hún tekur sér pensil í hönd. Jenný hefur prófað ýmis efni og aðfeðir svo sem olíupastel, krít, vatnsliti og akrýl. Ein þeirra aðferða sem hún hefur notað er að klippa til efnisbúta og líma á striga og mála síðan með akrýllitum í kring. Einnig að nota vatn og akrýlliti til að mynda sérstaka og heillandi blautáferð á striga. Nú um stundir málar hún mest akrýlverk á striga.

Mörg verkanna á sýningunni eru til sölu en sum eru þó í einkaeigu. Áhugasamir hafi beint samband við listamanninn.
Jenný - Jónína Katrín Jónsdóttir. Iðufelli 12, 111 Reykjavík, Sími 587 9314, gsm 770 7223.

2010