Gerðuberg

 

Við veginn


Ljósmyndasýning Sigurðar Stefáns Jónssonar
Í kaffihúsinu 17. janúar - 28. mars 2010

 

Sigurður StefánÁ sýningunni Við veginn, gefur að líta ljósmyndir af afskekktum stöðum á Íslandi. Appelsínugulur litur er fangaður í auðninni, einmanaleg neyðarskýli, vitar og fleira sem augað nemur.

Sigurður Stefán Jónsson er fæddur á Húsavík, 8. desember 1958. Hann ólst upp í Keflavík til fermingaraldurs en flutti þá til Reykjavíkur. Hann útskrifaðist úr Nýmáladeild Menntaskólans í Reykjavík vorið 1978 og lagði síðan stund á ljósmyndun við School of Visual Arts í New York á níunda áratugnum. Þaðan útskrifaðist hann með BFA próf í ljósmyndun árið 1986.

Að ljósmyndanámi loknu vann Sigurður að ljósmyndun í New York í tæp þrjú ár en kom heim til Íslands 1989 og hóf eigin rekstur í ljósmyndun. Fyrst undir heitinu, SSJ ljósmyndun, auglýsinga- og iðnaðarljósmyndun og síðar Fotografika. Allar götur síðan hefur hann unnið við hin ýmsu svið ljósmyndunar.

Sigurður hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum ljósmyndara auk nokkurra einkasýninga. Árið 2002 hóf hann að kenna ljósmyndun við Iðnskólann í Reykjavík, sem nú heitir Tækniskólinn, og kennir þar enn samhliða ljósmyndarekstri sínum. Hann hefur einnig kennt námskeið í stafrænni myndvinnslu við Listaháskóla Íslands, Nýja tölvu- og viðskiptaskólann og Margmiðlunarskólann. Einnig hefur hann haldið námskeið fyrir félög og stofnanir, s.s. Ljósmyndarafélag Íslands.


 

2011