Gerðuberg

 

Syngjum og kveðum um Þorrann


Sunnudaginn 17. janúar kl. 14-16

 


Íslensk alþýðulög sungin og kveðin, með smá blandi af erlendum þjóðlögum, í  kaffihúsinu í Gerðubergi, einu sinni í mánuði fram á vor um miðbik hvers mánaðar.
Sungnir verða lög um Þorrann, snjóinn og nýárið.

Í janúar hófst ný dagskrá í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi sem á rætur að rekja til Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Það eru þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster sem standa fyrir dagskránni sem ber heitið Sungið og kveðið en hún fer fram í kaffihúsinu annan sunnudag í hverjum mánuði.

Hér gefst fólki tækifæri til að hittast, kveða og syngja saman og einnig að syngja fyrir hvert annað,

Gestir fá sönghefti með íslenskum söng - og kvæðalögum fyrir fjöldasöng.

 

Dagskrá vetrarins er eftirfarandi:

17. janúar - Söngvar um Þorrann, snjóinn, og nýárið
14. febrúar -  Ástin - Hvað á betur við á Valentínusardaginn en að syngja og kveða um ástina og tilhugalífið?
14. mars - Eyjar í norður Atlandshafi. Söngvar úr Eyjum, frá Írlandi og Hjaltlandseyjum, Vikivakar og söngdansar frá Íslandi og Færeyjum.
11. apríl - Vorið góða grænt og hlýtt. Bjóðum sumarið velkomið með sól í hjarta og söng á vörum.
9. maí - Þjóðlög úr ýmsum áttum, Söngurinn sameinar fólk með mismunandi þjóðerni sem búa á Íslandi..

Chris Foster og Bára Grímsdóttir halda utan um söngstundirnar

Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri Gerðubergs, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is eða í síma 5757702

2011