Tóney - Heimstónlist
Heimstónlist - Tóney í Gerðubergi
Sunnudaginn 18. apríl kl. 14.00 verða tónleikar í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og verður athyglinni beint að heimstónlist.
Veturinn 2010 hófst ný tónleikaröð í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi; Tóney í Gerðubergi. Hér eru á ferðinni tónleikar ætlaðir tónlistarunnendum á öllum aldri, með þátttöku leikra sem lærðra, ungra sem aldna með fjölbreyttri efnisskrá í flutningi upprennandi tónlistarfólks jafnt sem atvinnumanna. Lögð er áhersla á breiða þátttöku, söng og hljóðfæraleik en einnig tengingu við heim leikhússins og dansins.
Tóney í Gerðubergi er góður vettvangur fyrir fjölskylduna að eiga ánægjulega stund saman í skapandi og skemmtilegu umhverfi. Kannski situr eitthvað smálegt eftir í minningu unga fólksins, kannski kveikir eitthvað í unglingnum, kannski fá þeir eldri frjóa hugmynd sem er framkvæmanleg og kannski lifnar í gömlum glæðum þeirra elstu? En fyrst og fremst að eiga saman góða stund.
Gestgjafi og umsjónarmaður Tóneyjar í Gerðubergi er Guðni Franzson tónlistarmaður en hann er jafnframt stofnandi Tóneyjar; miðstöðvar fyrir tónlist, dans og sviðslistir, sjá www.toney.is
Tónleikarnir eru um klukkustundar langir, án hlés og hefjast kl. 14.0
Dagskrá vetrarins er eftirfarandi:
24. janúar
Steinn í Tjarnarlundi, nýtt tónverk eftir Snorra Sigfús Birgisson flutt af nemendurm úr Tónlistarskóla Kópavogs
21. febrúar
Karnival
21. mars
Tröllin í fjöllunum, íslensk þjóðlög og Ástarsaga úr fjöllunum.
18. apríl
Heimstónlist, alþjóðleg stemming
16. maí
Grannmetislög e. Hauk Tómasson og Þórarinn Eldjárn, sprotar að vori, m.a. tónlist e. unga tónsmiði
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri; holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is og í síma 575-7702 / 868-1851 eða
Guðna Franzsyni; gudni@toney.is og í síma 862-4913
2010