Gerðuberg

 

Kanntu að búa til öskupoka og bolluvönd?


Sunnudaginn 14. febrúar kl. 14 – 16

Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur lifa lengi í minningunni! Að flengja foreldrana og aðra fullorðna að morgni bolludags og segja „bolla, bolla“ og fá jafnmargar bollur að launum síðar um daginn ásamt því að hengja öskupoka aftan á bak einhvers, án þess að viðkomandi verði þess var, eru gamlir og skemmtilegir siðir.

Bolluvendi er auðvelt að útbúa en þeir eru gjarnan gerðir úr löngum prikum og litríkum pappírsræmum. Öskupokar eru litlir skrautlegir pokar sem dregnir eru saman með þræði sem í er hengdur boginn títiprjónn. Markmiðið er að næla öskupokanum aftan á bakið á einhverjum án þess að fórnarlambið taki eftir því.

Gerðuberg býður nú í þriðja sinn upp á stutt fjölskyldunámskeið í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands þar sem gerðir eru öskupokar og bolluvendir eftir kúnstarinnar reglum. Sú nýbreytni verður að þessu sinni að auk námskeiðsins í Gerðubergi er boðið upp á sama námskeið í Borgarbókasafni Grófarhúsi kl. 15 - 16.30.

Krökkum á öllum aldri er boðið að taka þátt – takið gjarnan ömmu og afa með! Verkefnið er við allra hæfi, auðvelt og skemmtilegt með leiðsögn sérfróðra. Allt efni er á staðnum og þátttaka er ókeypis.

Í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands og Borgarbókasafn Reykjavíkur.