Gerðuberg

 

Ástríðulist


20. mars - 9. maí 2010


Ástríðulist er samsýning fjölmargra lærðra og leikinna listamanna sem eiga það sameiginlegt að nálgast listina af einlægni og ástríðu. Á sýningunni er lögð er áhersla á fjölbreytni, sköpunargleði, frelsi og frumlega sýn á lífið og listina. Mikil litadýrð og gleði einkennir ástríðulist en verkin á sýningunni mætti skilgreina sem alþýðulist (folk art), utangarðslist (outsiders art), bernska list (naive art) og samtímalist (contemporary art).
Í bræðslupotti samtímamenningar ægir saman alls konar myndmáli sem rekja má til listasögunnar og hefðarinnar, en einnig til alþýðulistarinnar; svo sem hannyrða, útskurðar og dægurmenningar; svo sem kvikmynda, myndasagna, graffití eða götulistamanna. Ungir listamenn sem hafa lokið formlegu listnámi sækja óhikað í þennan sjóð og sífellt verður erfiðara að sundurgreina hina fjölmörgu stíla og stefnur.

Við val á verkum á sýninguna hafa sýningarstjórarnir Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir haft að leiðarljósi að verkin endurspegli umfram allt sköpunarþörf, kraft, gleði og persónulega nálgun á viðfangsefninu. Verkin eru fjölbreytt; veggverk, skúlptúrar, textílverk og innsetningar. Þau koma víða að, svo sem úr Safnasafninu á Svalbarðsströnd, Listasafni Akureyrar, Listasafni Reykjavíkur, Hafnarborg og Sólheimum, úr einkaeigu og frá listamönnunum sjálfum sem sumir hverjir vinna ný verk eða innsetningar fyrir sýninguna.

Listamenn:

Bragi Sigurgeirsson •  Björn Guðmundsson • Eggert Magnússon • Einar Baldursson • Elín S.M. Ólafsdóttir • Friðrik Hansen • Frosti Friðriksson Gunnar Einarsson • Hafþór Ragnar Þórhallsson • Halldóra Kristinsdóttir • Helga Dómhildur Alfreðsdóttir • Helgi Björnsson • Hildur Kristín Jakobsdóttir • Hugleikur Dagsson • Ilmur Stefánsdóttir • Ísak Óli Sævarsson • Kata saumakona Norðanbál • Ragnar Hermannsson • Sara Björnsdóttir • Sigrún Gísladóttir Sigurður Sveinsson • Sigurlaug Jónasdóttir • Svava Skúladóttir • Þorsteinn Díómedesson

Sjá nánari upplýsingar um listamennina..

 

Sýningastjórar:

Þorbjörg Brynhildur Gunnarsdóttir (f. 1949) útskrifaðist úr málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1989 og stundaði meistaranám í safnafræði við Amsterdam School of the Arts í Hollandi 1999-2000. Hún var deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur frá 1991-1997, deildarstjóri sýninga- og safnadeildar frá 1997-2002 og deildarstjóri safnadeildar frá 2002-2007. Þorbjörg var sýningarstjóri Þjóðminjasafns Íslands 2008 og aftur 2010. Hún hefur séð um gerð og uppsetningu fjölda sýninga í Listasafni Reykjavíkur og í Þjóðminjasafni Íslands ásamt því að taka að sér sýningarverkefni fyrir ýmis söfn og menningarmiðstöðvar, þar á meðal Gerðuberg og Lækningaminjasafn Íslands.


Þórunn Elísabet Sveinsdóttir (f. 1952) stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands í frjálsri myndlist. Þórunn hóf fljótlega störf tengd leikhúsum þar sem hún hefur getið sér gott orð fyrir búningahönnun og sviðsmyndir. Við vinnu sína hefur hún jafnan farið þá leið að endurvinna gömul efni og búninga. Auk fjölmargra verkefna fyrir leikhús og kvikmyndir hefur Þórunn Elísabet unnið að myndlist sinni, haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Gerðuberg hélt Þórunni Elísabetu Sjónþing árið 2001 og á sama tíma sýndi hún nýjustu verk sín. Hún tók einnig þátt í safnarasýningu Gerðubergs árið 2005 þar sem hún sýndi fágæt útsaumsverk og útsaumteikningar.

 

2010