Farfuglinn - Rafmögnuð ópera fyrir ungt fólk
Óperan er eftir Hilmar Þórðarson.
Leikstjórn, leikmynd, búningar og handrit eftir Messíönu Tómasdóttur.
Rafópera: Farfuglinn á vegum Strengjaleikhússins í samstarfi við Tónlist fyrir alla.
Sýningar: Gerðuberg 23., 24. og 25. febrúar 2010 kl. 9.00 og 10.30 (sýningartími 45 mín).
Markhópur: Unglingar í 8.-10. bekk grunnskóla.
Aðgangur: 210 kr. á nemenda.
Rútuferðir: Fríar ferðir fyrir hópa innan Reykjavíkur.
Undirbúningur: Kennarar fá sent skemmtilegt námsefni í litafræði til undirbúnings.
Skráning: margret.valdimarsdottir@reykjavik.is
Farfuglinn er rafópera um dauðann og sorgina. Handrit verksins byggir á sögunni um Móðurina eftir H.C.Andersen og Farfuglinum, ljóðabók eftir indverska skáldið Rabindranath Tagore. Sagan fjallar um móður sem missir barn sitt en í óperunni flyst áherslan frá móðurinni yfir á barnið, sem þar er einmitt á unglingsaldri. Unglingar verða sérstaklega illa úti í glímu við tilfinningar sínar vegna fráfalls ættingja og náinna vina. Erfiðara er fyrir unglinga en börn að leita til foreldra sinna með sorg sína, en hinsvegar eru þau ekki enn búin að öðlast þroska hinna fullorðnu til að kljást við svo erfiðar tilfinningar. Farið mildum höndum um þetta viðkvæma viðfangsefni.
Óperan er síbreytileg, hún getur tengst tíðaranda unglinga og haft hljóm sem höfðar til þeirra. Markmiðið með Farfuglinum er að kynna fyrir yngri kynslóðinni
nýsköpun í íslenskri tónlist í formi nútíma óperu og hvernig blanda má þeirri tegund tónlistar saman við raftónlist.
Verkið er flutt af þremur söngvurum og þremur hljóðfæraleikurum í fremstu röð auk þess sem ævintýralegir tæknigaldrar raftónlistarinnar gegna mikilvægu hlutverki. Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran syngur móðurina, Jóhann Smári Sævarsson baríton syngur dauðann, nóttina, rósarunnann, hafið og grafkonuna, en fjögur þau síðastnefndu eru einskonar leikbrúður. Unglingsstúlka, Halla Messíana Kristinsdóttir, syngur og dansar barnið. Hljóðfæraleikarar eru Melkorka Ólafsdóttir á flautu, Rúnar Óskarsson á klarinettu og Gísli Galdur Þorgeirsson á slagverk, en hann er jafnframt hljóðmaður sýningarinnar. Leikmyndin samanstendur að miklu leiti af flóknum hreyfimyndum og annast Salvör Rita Jónsdóttir ljósmyndun og vinnslu á þeim.
Verkefnið Farfuglinn hefur fengið styrki frá Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Barnamenningarsjóði, Musica Nova, Tónlistarsjóði og 365 miðlum og Messíana Tómasdóttir hefur hlotið sex mánaða starfslauna fyrir verkefnið. Einnig hefur Ingibjörg Guðjónsdóttir hlotið sex mánaða starfslaun fyrir þetta verkefni og önnur.
Sjáumst í Gerðubergi!
2011