Gerðuberg

 

Breiðholt - Í augnablikinu


Ljósmyndasýning Friðgeirs Helgasonar
16. maí til 30. júní 2010.
Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010.

Friðgeir Helgason er fæddur í Vestmannaeyjum árið 1966. Hann flutti í Breiðholtið eftir Vestmannaeyjagosið og bjó í Viðlagasjóðshúsi við Keilufell. Hann stundaði nám í Fellaskóla fram til 13 ára aldurs en flutti þá frá Reykjavík.

Á Aðfangadag árið 1986 flutti Friðgeir til Los Angeles og bjó þar til ársins 1990 en þá lá leiðin til New Orleans. Þar bjó hann næstu 14 árin og starfaði sem matreiðslumeistari á sumum af bestu veitingahúsum borgarinnar.
Árið 2004 flutti hann svo aftur til Los Angeles og endaði á götunni og bjó meðal annars í pappakassa á Skid Row í miðbæ Englaborgarinnar.
Í desember 2004 fékk hann að búa á Midnight Mission og ákvað að venda kvæði sínu í kross og fara að stunda nám í kvikmyndatöku í Los Angeles City College. Þar þurfti hann að taka byrjenda námskeið í ljósmyndun og fann hann undireins að þar var hann kominn á rétta hillu í lífinu og hefur ekki litið til baka síðan þá.

Friðgeir hefur haldið þrjár einkasýningar í galleríum í Los Angeles og hefur einnig aðstoðað heimsþekkta ljósmyndara eins og Bruce Davidson og Todd Hido.

Sumarið 2006 var Friðgeir í heimsókn á Íslandi og kviknaði þá hugmyndin að ljósmyndaverkefninu. Friðgeir dvelur í Orrahólum í Breiðholti þegar hann kemur til Íslands og tveimur árum seinna ákvað hann að ljósmynda hverfið þar sem hann ólst upp sem barn.

Friðgeir segir sjálfur um verkefnið:
„Það sem vakti áhuga minn á að ljósmynda Breiðholtið var sú staðreynd að ég fann sterkar tengingar við umhverfið og að ég ljósmyndaði það sem flestir litu framhjá í sínu daglega amstri.  Ég reyndi að sjá fegurðina í hinu einfalda og venjulega. Ég hef engan áhuga á að ljósmynda Gullfoss og Geysi, það hefur verið gert til hlítar. Á sinn sérstaka hátt finnst mér Breiðholtið hafa yfir sömu fegurð að bera og hvert annað hverfi, maður verður bara að gefa sér tíma til að stoppa og horfa á það sem fyrir augum ber. Má þar nefna Bónus að næturlagi, einmanna rennibraut eða innkaupakerrur sem skyldar hafa verið eftir á víðavangi.”

Sýningin stendur frá 16. maí til 30. júní 2010 og er opin virka daga frá 11-17 og um helgar frá kl. 13-16.
Ath að lokað er um helgar í júní.

2010