Landsýn
Dagbjört Matthíasdóttir og Magnús Hannibal Traustason
Í Boganum 25. mars – 2. maí 2010.
´
Hjónin Dagbjört Matthíasdóttir og Magnús Hannibal Traustason sýna olíumálverk sem þau hafa verið að mála sl. þrjú ár og hafa þau aðallega sótt myndefnið úr íslenskri náttúru en eitt af þeirra áhugamálum eru ferðalög um landið.
Dagbjört og Magnús, eða Dagga og Maggi eru nýfarin að mála. Ástæðuna segja þau vera að fyrir þremur árum var haldið ættarmót í ættinni hans Magnúsar á Sauðanesvita við Siglufjörð. Þau boð voru látin út ganga að allir ættu að koma með einhvers konar listaverk, málverk, ljóð, skúlptúr, gjörning eða hvað annað sem fólki dytti í hug. Nú voru góð ráð dýr. Eftir dágóða umhugsun fengu hjónin sér vatnsliti og pensla og byrjuðu að koma einhverju á blað. Það gekk nú ekkert sérlega vel að þeirra sögn, en á ættarmótið mættu þau þó með sín „listaverk“.
Þess ber að geta að í Sauðanesvita var haldin hin fjölbreyttasta listsýning þessa helgi. Eftir þetta komust þau að því að þarna væri komið skemmtilegt áhugamál.
Haustið eftir fóru hjónin norður í land á helgarnámskeið hjá Erni Inga á Akureyri. Sú helgi var mörkuð þjáningu, svita og tárum, þar sem þau reyndu árangurslítið að klessa einhverjum litum á striga undir strangri handleiðslu Arnar Inga sem enga miskunn sýndi.
Eftir þessa skelfingarhelgi var samt ekki aftur snúið. Þau keyptu svolítið að litum, penslum, striga og trönur og brettum upp ermar. Segja má að þau hafi ekki stoppað síðan.
Fyrsta veturinn fóru þau í Kvöldskóla Kópavogs til Ingimars Waage. Árið 2009 byrjuðu þau svo í myndlistarklúbbnum Litagleði, fyrst undir handleiðslu Ingimars og síðan Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar.
Þetta hefur verið frábært tómstundagaman en segjast þó stundum hafa fengið nóg og hótað að henda penslum og striga út í hafsauga.
Aldrei er þó tíminn nógur til að mála. Vinnan kallar, en Magnús er vélsmiður og Dagbjört bókari. Eins hafa þau mörg önnur áhugamál og ber þar hæst göngur um landið okkar þvert og endilangt. Þaðan hafa þau einnig fengið myndefnið í flestar myndirnar.
Magnús Hannibal Traustason fæddur ´54 á Djúpuvík á Ströndum og Dagbjört Matthíasdóttir fædd ´52 í Kópavogi
Mörg verkanna á sýningunni eru til sölu og eru áhugasömum bent á að tala beint við listamennina.
Magnús í síma: 690-1918
Dagbjört í síma: 690-8282
Sýningin stendur frá 21. mars–3. maí 2010 og er opin virka daga frá 11-17 og um helgar frá kl. 13-16
2010