Gerðuberg

 

Tóney - Steinn í Tjarnarlundi


Steinn í Tjarnarlundi - nýtt tónverk eftir Snorra Sigfús Birgisson flutt af nemendum úr Tónlistarskóla Kópavogs
24. janúar 2010 kl. 14.00

Flutt verður tónverkið Steinn í Tjarnarlundi eftir Snorra Sigfús Birgissson en verkið var samið árið 2008 að beiðni Þóru Sigurðardóttur fyrir nemendur í Grunnskólanum Tjarnarlundi í Dalasýslu.  Nemendur í skólanum, 12 að tölu, léku allir á hljóðfæri og miðast hljóðfæraskipan verksins við þau ákveðnu hljóðfæri.  Í verkinu tónsetur Snorri fjögur kvæði eftir Stein Steinarr, kvæðin Bær í Breiðafirði, Vor, Mannkynssaga fyrir byrjendur og Kveld við Breiðafjörð.  Það er hópur nemenda úr Tónlistarskóla Kópavogs sem flytur verkið undir stjórn Þóris Jóhannssonar.

Efnisskrá er fjölbreytt og flytjendur eru jafnt upprennandi tónlistarfólk sem og atvinnumenn. Lögð er áhersla á breiða þátttöku, söng og hljóðfæraslátt en einnig tengingu við dans og leiklist.
Tóney í Gerðubergi er ætluð öllum og því kjörið fyrir alla fjölskylduna að eiga ánægjulega stund saman, í skapandi og skemmtilegu umhverfi.

Tónleikarnir eru um klukkustundar langir, án hlés og hefjast kl. 14.00.  Að þeim loknum er kaffistofan opin gestum.
Tóney í Gerðubergi er samstarfsverkefni Tóneyjar og Gerðubergs.
Gestgjafi og umsjónarmaður dagskrárinnar er Guðni Franzson tónlistarmaður en hann er jafnframt stofnandi Tóneyjar miðstöðvar fyrir tónlist, dans og sviðslistir, sjá www.toney.is

Dagskrá vetrarins er eftirfarandi:

24. janúar
Steinn í Tjarnarlundi, nýtt tónverk eftir Snorra Sigfús Birgisson flutt af nemendurm úr Tónlistarskóla Kópavogs
21. febrúar
Karnival
21. mars
Tröllin í fjöllunum, íslensk þjóðlög og Ástarsaga úr fjöllunum.
18. apríl
Heimstónlist, alþjóðleg stemmning
16. maí
Grannmetislög e. Hauk Tómasson og Þórarinn Eldjárn, sprotar að vori, m.a. tónlist e. unga tónsmiði

Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri; holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is og í síma 575-7702
Guðni Franzson; gudni@toney.is og í síma 862-4913

 

 

 

2011