Tóney í Gerðubergi - Karnival

Sunnudaginn 24. janúar kl. 14:00 - Steinn í Tjarnarlundi
nýtt tónverk eftir Snorra Sigfús Birgisson, flutt af nemendum úr Tónlistarskóla Kópavogs
Að þessu sinni verður, flutt tónverkið Steinn í Tjarnarlundi eftir Snorra Sigfús Birgissson en verkið var samið árið 2008 að beiðni Þóru Sigurðardóttur fyrir nemendur í Grunnskólanum Tjarnarlundi í Dalasýslu. Nemendur í skólanum, 12 að tölu, léku allir á hljóðfæri og miðast hljóðfæraskipan verksins við þau ákveðnu hljóðfæri. Í verkinu tónsetur Snorri fjögur kvæði eftir Stein Steinarr, kvæðin Bær í Breiðafirði, Vor, Mannkynssaga fyrir byrjendur og Kveld við Breiðafjörð. Það er hópur nemenda úr Tónlistarskóla Kópavogs sem flytur verkið undir stjórn Þóris Jóhannssonar.
Tóney í Gerðubergi eru tónleikar ætlaðir tónlistarunnendum á öllum aldri, með þátttöku leikra sem lærðra, ungra sem aldna.
Efnisskrá er fjölbreytt og flytjendur eru jafnt upprennandi tónlistarfólk sem og atvinnumenn. Lögð er áhersla á breiða þátttöku, söng og hljóðfæraslátt en einnig tengingu við dans og leiklist.
Tóney í Gerðubergi er samstarfsverkefni Tóneyjar og Gerðubergs. Gestgjafi og umsjónarmaður dagskrárinnar er Guðni Franzson tónlistarmaður en hann er jafnframt stofnandi Tóneyjar miðstöðvar fyrir tónlist, dans og sviðslistir, sjá www.toney.is
Tónleikarnir eru um klukkustundar langir, án hlés og hefjast kl. 14.00.
2010