Úr grárri forneskju í glansandi bók
Ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir
Laugardaginn 13. mars 2010 kl. 10:30 – 13:15
Í ár heldur Gerðuberg 12. barna- og unglingabókaráðstefnuna í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur, IBBY á Íslandi, Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Upplýsingu - Félag bókasafns- og upplýsingafræða og Félag fagfólks á skólasöfnum.
Dagskrá ráðstefnunnar
Iðunn Steinsdóttir, rithöfundur
Hittust Æsir á Iðavelli
Iðunn Steinsdóttir hefur endurskrifað efni Snorra-Eddu fyrir börn, í þremur bókum sem Námsgagnastofnun gefur út. Hún segir frá bókunum og tilurð þeirra og bregður upp mögnuðum myndum úr þeim af goðum og gyðjum eftir Freydísi Kristjánsdóttur.
Ármann Jakobsson, íslenskufræðingur
Miðaldir og menntaskólaneminn
Ármann ræðir nýlega kennslubók sína í bókmenntasögu fyrir framhaldsskólastigið og ýmis vandamál sem fylgja því að vekja áhuga íslenskra unglinga á miðaldabókmenntum.
Friðrik Erlingsson, rithöfundur
Þruma úr heiðskíru lofti
Friðrik Erlingsson fjallar um þróun bókar og kvikmyndarinnar "Þór í Heljargreipum" og ræðir um nauðsyn á ákveðnu virðingarleysi fyrir fornu sagnaefni til öflugri nýsköpunar og endurframsetningar fornra sagnaminna.
Brynhildur Þórarinsdóttir, lektor
„Minns er Egill og þinns er Þórólfur”
Innlifun og samsömun einkennir lestur barna. Því er nauðsynlegt að börn hafi tækifæri til að lifa sig inn í bækurnar sem þau lesa, sérstaklega þegar þær fjalla um jafn framandi veröld og Íslendingasögurnar. Brynhildur fjallar hér um barnaútgáfur Íslendingasagnanna og viðtökur þeirra, sem og Gásagátuna, sögulega skáldsögu frá 13. öld. sem byggist á sömu hugmynd: Að hjálpa börnum að upplifa fortíðina.
Fundarstjóri: Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur
Ókeypis aðgangur
Í hléi geta ráðstefnugestir keypt girnilegt salat, súpu og eftirrétti hjá Gallerý fiski sem sér um veitingareksturinn í Gerðubergi.
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is, sími: 575-7702 eða 868-1851
2011