Gerðuberg

 

Ástarsaga úr fjöllunum. Egill Ólafsson og Caput hópurinn


Sunnudaginn  21. mars kl. 14.00 verða tónleikar í tónleikaröð Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs; Tóney í Gerðubergi.  Þar kemur Egill Ólafsson fram ásamt Caput hópnum og flytur Ástarsögu úr fjöllunum eftir Guðrúnu Helgadóttur.  Guðni Franzson tónlistarmaður hefur samið sönglög við texta Péturs Eggerz sem tengjast þessari fallegu sögu.

 Aðgangur á tónleikana er ókeypis. 

Sagan segir af tröllskessunni Flumbru sem verður svo hræðilega ástfangin af stórum og lötum tröllkarli sem býr langt í burtu.  Hún verður að leggja á sig mikið og áhættusamt ferðalag til að njóta ásta með honum, það tekst meðan nóttin er löng.  Þeim fæðast átta tröllastrákar, hver öðrum fegurri og elskulegri.  Þegar þeir stálpast ákveður Flumbra að taka þá með í heimsókn til karls föður þeirra en ferðin fer á annan veg en ætlað var.

Tónlistin við Ástarsögu úr fjöllunum var samin fyrir nokkrum árum fyrir barnatónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands en heyrist nú í nýjum búningi fyrir minni hóp hljóðfæra.

Caput hópurinn var stofnaður árið 1987 með það að markmiði að flytja nýja tónlist.   Síðan þá hafa komið út yfir 20 geisladiskar með leik hópsins sem hefur hlotið alþjóðlega athygli og viðurkenningar fyrir framúrskarandi flutning.  Þetta er í annað skipti sem Caput og Egill Ólafsson leiða saman hesta sína, fyrra skiptið var á marglofuðum tónleikum Þursaflokksins í Laugardalshöll árið 2008 en þeir tónleikar komu út á geisladiskum og þóttu einn merkasti tónlistarviðburður ársins.

Tóney í Gerðubergi er tónleikaröð ætluð tónlistarunnendum á öllum aldri, með þátttöku leikra sem lærðra, ungra sem aldna, fjölbreytt efnisskrá í flutningi upprennandi tónlistarfólks jafnt sem atvinnumanna.  Lögð er áhersla á breiða þátttöku,  söng og hljóðfæraleik en einnig tengingu við heim leikhússins og dansins. 

Gestgjafi og umsjónarmaður Tóneyjar í Gerðubergi er Guðni Franzson tónlistarmaður en hann er jafnframt stofnandi Tóneyjar; miðstöðvar fyrir tónlist, dans og sviðslistir, sjá www.toney.is.


Tónleikarnir eru um klukkustundar langir, án hlés og hefjast kl. 14.00.  Næsta Tóney í Gerðubergi verðu sunnudaginn 18. apríl en þá verður áherslan á fjölbreytta heimstónlist með þátttöku fjölda ungmenna.

Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri; holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is og í síma 575-7702 / 868-1851 eða
Guðni Franzson; gudni@toney.is og í síma 862-4913


 

2010