Klassík í hádeginu - Vor í París
Föstudaginn 26. feb kl. 12:15 og sunnudaginn 28. feb 2010 kl. 13:15
Flytjendur: Áshildur Haraldsdóttir, flauta
Nína Margrét Grímsdóttir, píanó
Efnisskrá: Sónötur, fantasíur og concertino eftir
Dutilleux, Poulenc, Messiaen og Chaminade.
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari.
Tónleikaröðin Klassík í hádeginu hefst að nýju á nýju ári. Um er að ræða 6 hádegistónleika á bilinu febrúar 2010 – apríl 2010, hver efnisskrá er flutt tvisvar, á föstudegi og á sunnudegi til þess að gefa sem flestum tækifæri til að njóta tónlistarinnar. Lengd hverra tónleika er á bilinu 30-40 mínútur án hlés. Gert er ráð fyrir að tónleikagestir hafi möguleika á að kaupa sér hádegissnarl fyrir eða eftir tónleikana. Aðgangur er ókeypis og er það von aðstandenda verkefnisins að tónleikarnir verði andlega næring og hvíld frá amstri hversdagsins.
Á efnisskrá verða flutt verkin:
Chaminade (1857-1944): Concertino op. 107,
Hüe (1858-1948):
Fantaisie og Poulenc (1899-1963): Sonata, Allegretto malincolico, Cantilena, Presto giocoso
Messiaen (1908-1992): Le merle noir (Svartþrösturinn)
Klassík í hádeginu er vönduð tónleikaröð sem býður gestum upp á fjölbreytta dagskrá klassískra tónverka. Hverjum tónleikum er fylgt úr hlaði með kynningum flytjenda með því markmiði að veita áheyrendum innsýn inn í heim klassískrar tónlistar. Allir flytjendur hafa starfað á Íslandi og erlendis um árabil ásamt því að hafa hljóðritað fyrir innlend og erlend útgáfufyrirtæki. Þar má m.a. telja Nínu Margréti Grímsdóttur, píanóleikara og listrænan stjórnanda tónleikanna
Þjónusta fyrir hópa
Í kaffihúsinu, sem rekið er af Gallerý fiski, er hægt að fá ljúffengan hádegisverð, kaffi og með því. Einnig er hægt að skoða sýningar í húsinu en þær eru að þessu sinni fimm talsins. Hópar eru vinsamlegast beðnir að skrá sig fyrirfram á gerduberg@reykjavik.is eða í síma 575 7700.
Nánari upplýsingar veita Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri í Listadeild; holmfridur.olafsdottir@gerduberg.is eða í síma 575 7702 og Nína Margrét Grímsdóttir, gsm 899 641.
2011