Klassík í hádeginu - tveggja alda tónlist
Föstudaginn 26. mars kl. 12:15 og sunnudaginn 28. mars kl. 13:15
Flytjendur: Natalia Benedetti, klarínettuleikar og Sebastiano Brusco, píanóleikari
Efnisskrá: Einleiksverk og dúó eftir Schumann, Schubert, Brusco, Arbonelli-Piazzolla, og Poulenc
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari.
Tónleikaröðin Klassík í hádeginu hefst að nýju á nýju ári. Um er að ræða 6 hádegistónleika á bilinu febrúar 2010 – apríl 2010, hver efnisskrá er flutt tvisvar, á föstudegi og á sunnudegi til þess að gefa sem flestum tækifæri til að njóta tónlistarinnar. Lengd hverra tónleika er á bilinu 30-40 mínútur án hlés. Gert er ráð fyrir að tónleikagestir hafi möguleika á að kaupa sér hádegissnarl fyrir eða eftir tónleikana. Aðgangur er ókeypis og er það von aðstandenda verkefnisins að tónleikarnir verði andlega næring og hvíld frá amstri hversdagsins.
Á efnisskrá verða flutt verkin:
Robert Schumann
Fantasiestücke op. 73 (1837)
Zart und mit Ausdruck
Lebhaft, leicht
Rasch und mit Feuer
Franz Schubert
Impromptu Op. 90 nr. 3 fyrir píanó
Sebastiano Brusco
Drops fyrir píanó
Arbonelli-Piazzolla
Elaboration on Piazzolla`s themes fyrir klarinett
Francis Poulenc
Sónata fyrir klarinett og píanó (1962)
Allegretto
Romanza
Allegro con fuoco
Klassík í hádeginu er vönduð tónleikaröð sem býður gestum upp á fjölbreytta dagskrá klassískra tónverka. Hverjum tónleikum er fylgt úr hlaði með kynningum flytjenda með því markmiði að veita áheyrendum innsýn inn í heim klassískrar tónlistar. Allir flytjendur hafa starfað á Íslandi og erlendis um árabil ásamt því að hafa hljóðritað fyrir innlend og erlend útgáfufyrirtæki. Þar má m.a. telja Nínu Margréti Grímsdóttur, píanóleikara og listrænan stjórnanda tónleikanna
Þjónusta fyrir hópa
Í kaffihúsinu, sem rekið er af Gallerý fiski, er hægt að fá ljúffengan hádegisverð, kaffi og með því. Einnig er hægt að skoða sýningar í húsinu en þær eru að þessu sinni fimm talsins. Hópar eru vinsamlegast beðnir að skrá sig fyrirfram á gerduberg@reykjavik.is eða í síma 575 7700.
Nánari upplýsingar veita Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri í Listadeild; holmfridur.olafsdottir@gerduberg.is eða í síma 575 7702 og Nína Margrét Grímsdóttir, gsm 899 6413.
2010