Vinir Káins
Miðvikudaginn 7. apríl kl. 20.30 munu Kvæðamannafélagið Iðunn og Baggalútur standa að afmælisfundi um Káinn.
Káinn (K. N.) var fæddur 1860. Skírnarnafn hans var Kristján Níels Jónsson, en þegar hann fór, alfarinn, vestur um haf árið 1878, tók hann upp ættarnafnið Júlíus. Þar bjó hann í Dakota-byggðinni íslensku í Pembina í Kanada. Hann hafði búið þar næstum 60 ár er hann lést.
Fyrir áeggjan vina sinna vestan hafs gaf K. N. út Kviðlinga 1920, og vísur hans birtust líka í ritinu Vestan um haf 1930.
Kveðskap Káins var gjarnan lýst með orðum eins og ,kímnikveðskapur´, en margt af því sem hann samdi, í sínu reglubundna formi stökunnar, ristir dýpra en menn ætla við fyrstu sýn. Hnyttni hans og hæðni gat beinst að öllum, honum sjálfum líka:
Dagskráin
• Steindór Andersen segir okkur frá kímniskáldinu Káinn og fer með nokkur vel valdar vísur.
• Félagsmenn Iðunnar kveða nokkrar vísur eftir Káinn.
• Baggalútur syngur lög af plötunni Sólskinið í Dakóta.
Sjá nánar um Káinn og hljómskífu Baggalúts, Sólskinið í Dakota
Nánari upplýsingar veitir: Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is og í síma 575-7702 / 868-1851
2010