Gerðuberg

 

Syngjum og kveðum um ástina


Íslensk alþýðulög sungin og kveðin í kaffihúsi Gerðubergs
14. febrúar 2010 kl. 14-16

Sungin verða lög um ástina því hvað á betur við á Valentínusar-daginn en að syngja og kveða um ástir og tilhugalífið.

Í janúar hófst ný dagskrá í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi sem á rætur að rekja til Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Það eru þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster sem standa fyrir dagskránni sem ber heitið Sungið og kveðið en hún fer fram í kaffihúsinu annan sunnudag í hverjum mánuði.

Þema söng og kvæðastundarinnar á sunnudaginn - Valentínusardaginn, er ást,
hjónaband og ástarsorg.

Konstantin Shcherbak syngur og kennir rússneskt lag og fá gestir hefti með lögunum og geta sungið með.  Bára Grímsdóttir og Chris Foster flytja nokkur lög ásamt því að sagnakonan Sigurbjörg Karlsdóttir segir ástarsögur. Einnig má eiga von á fleiri óvæntum uppákomum.

Gestir fá sönghefti með íslenskum söng- og kvæðalögum fyrir fjöldasöng.

Dagskrá vetrarins er eftirfarandi:

17. janúar – Vetur - Söngvar um Þorrann, snjóinn, og nýárið.
14. febrúar  -  Ástin - Hvað á betur við á Valentínusardaginn en að syngja og kveða um ástina og tilhugalífið?
14. Mars - Eyjar í norður Atlandshafi - Söngvar úr Eyjum, frá Írlandi og Hjaltlandseyjum, Vikivakar og söngdansar frá Íslandi og Færeyjum.
11. apríl - Vorið góða grænt og hlýtt - Bjóðum sumarið velkomið með sól í hjarta og söng á vörum.
9. maí - Þjóðlög úr ýmsum áttum - Söngurinn sameinar fólk af ólíku þjóðerni.

Chris Foster og Bára Grímsdóttir halda utan um söngstundirnar.

Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri Gerðubergs, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is eða í síma 575 7702 / 868 1851

2011