Gerðuberg

 

Syngjum og kveðum um Eyjarnar


Sunnudagur 14. mars kl. 14-16.
Íslensk alþýðulög sungin og kveðin með blandi af erlendum þjóðlögum. Eigum saman góða stund og kveðum stemmur, syngjum, og hlýðum á söngva, lög, vikivaka og dansa frá eyjum í norður Atlanshafi, má þar nefna Bretlandseyjum, Írlandi, Hjaltlandseyjum, Íslandi, Vestmannaeyjum, Færeyjum en einnig verða lög frá Búlgaríu á dagsskrá.

Í janúar hófst ný dagskrá í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi sem á rætur að rekja til Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Það eru þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster sem standa fyrir dagskránni sem ber heitið Sungið og kveðið en hún fer fram í kaffihúsinu annan sunnudag í hverjum mánuði.

Hér gefst fólki tækifæri til að hittast, kveða og syngja saman og einnig að syngja fyrir hvert annað,

Gestir fá sönghefti með íslenskum söng - og kvæðalögum fyrir fjöldasöng.

Dagskrá vetrarins er eftirfarandi:

17. janúar. –Vetur.
/ Söngvar um Þorrann, snjóinn, og nýárið
14. febrúar. -  Ástin. /Hvað á betur við á Valentínusardaginn en að syngja og kveða um ástina og tilhugalífið?
14. mars. - Eyjar í norður Atlandshafi. /  Söngvar úr Eyjum, frá Írlandi og Hjaltlandseyjum, Vikivakar og söngdansar frá Íslandi og Færeyjum.
11. apríl. - Vorið góða grænt og hlýtt./ Bjóðum sumarið velkomið með sól í hjarta og söng á vörum.
9. maí Þjóðlög úr ýmsum áttum, / Söngurinn sameinar fólk með mismunandi þjóðerni sem búa á Íslandi..

Chris Foster og Bára Grímsdóttir halda utan um söngstundirnar

Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri Gerðubergs, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is eða í síma 5757702

2010