Sungið og kveðið - Þjóðlönd
Syngjum og kveðum í kaffihúsi Gerðubergs sunnudaginn 9. maí kl. 14-16
Þjóðlög úr ýmsum áttum - Söngurinn sameinar fólk af ólíku þjóðerni. Ókeypis aðgangur
Eigum saman góða stund, syngjum og kveðum íslensk og erlend alþýðulög og hlýðum einnig á söngva frá ýmsum þjóðlöndum og sögur.
Þeir sem koma fram að þessu sinni eru meðal annars Patthama Meghavibhata frá Tælandi, Kristín frá Víetnam, Veska Jónsdóttir og Rumyana Þorbjarnarson frá Búlgaríu og Konstantín Shcherbak frá Rússlandi.
Gestir fá sönghefti með íslenskum og erlendum söng- og kvæðalögum fyrir fjöldasöng.
Chris Foster og Bára Grímsdóttir halda utan um söngstundirnar.
Dagskráin Syngjum og kveðum hefur verið á dagskrá í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi frá janúar 2010 og farið fram í kaffihúsinu annan sunnudag í hverjum mánuði.
Í sumar verður gert hlé á dagskránni en hefst hún aftur á komandi hausti.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Valdimarsdóttir; margret.valdimarsdottir@reykjavik.is og í síma 575-7715
2010