Gerðuberg

 

Heimsdagur barna á Barnamenningarhátíð í Reykjavík


Heimsdagur barna
laugardaginn 24. apríl 2010 
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og frístundamiðstöðinni Miðbergi.

Listsmiðjur tengdar litríkri menningu ýmissa þjóða standa frá 13.00-16.00 og síðan er boðið upp á skemmtidagskrá frá kl. 16.00-17.00 með vísindalegum uppákomum, tónlist og leikjum.

Dagskrá Heimsdags barna í ár er með fjölbreyttara móti.
Við munum kynnast framandi menningu með því að læra filippeysk dansspor, búa til okkar eigið tónverk með didgeridoo og arabískum trommum, leika vísindamenn og búa til sprengju, gera okkar eigið indíánahöfuðskraut, leika indverskar prinsessur og sjóræningja og margt fleira skemmtilegt!

Kynnið ykkur dagskrá Heimsdags barna...

Heimsdagur barna er liður í Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2010 -
Smellið hér til að kynna ykkur dagskrána hátíðarinnar 19.4. - 25.4.

Í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur, frístundamiðstöðina Miðberg og Höfuðborgarstofu.

See English translation    See Spanish translation    See Polish translation     See Thai translation

Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is eða í síma 575-7702 / 868-1851

2010